fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
Eyjan

Seðlabankinn hækkar stýrivexti sína

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 25. ágúst 2021 09:30

Er Seðlabankinn bara verkfæri í höndum Sjálfstæðisflokksins og útgerðarinnar?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1,25%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum. Hækkunin er þvert á spár greiningardeilda Landsbankans og Íslandsbanka sem spáðu óbreyttum stýrivöxtum.

Í tilkynningu Seðlabankans kemur fram að efnhagshorfur hafi batnað frá fyrri spá bankans og eru horfur á meiri hagvexti á árinu en spáð var í vor. Þá segir að Covid-faraldurinn og fjölgun smita valdi nokkurri óvissu:

„Efnahagshorfur hafa batnað frá fyrri spá bankans. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í ágústhefti Peningamála eru horfur á 4% hagvexti í ár sem er 0,9 prósentum meiri vöxtur en spáð var í maí. Vegur þar þungt örari fjölgun ferðamanna í sumar en gert var ráð fyrir. Atvinnuleysi hefur hjaðnað meira en spáð var þótt það sé enn mikið og slakinn í þjóðarbúskapnum minnkað hraðar.

Stór hluti þjóðarinnar er nú bólusettur gagnvart COVID-19-farsóttinni. Smitum hefur hins vegar fjölgað á ný og enn er nokkur óvissa um framvindu farsóttarinnar vegna aukinnar útbreiðslu Delta-afbrigðis veirunnar. Þá gætu áhrif tímabundinna framboðstruflana erlendis varað lengur en áður var talið en þær hafa hækkað kostnað við að framleiða og dreifa vörum um allan heim.“

Verðbólga hefur mælst yfir fjögur prósent undanfarna mánuði og segir í tilkynningunni að bankinn muni beita þeim tækjum sem hann hefur yfir að ráða til að tryggja hjöðnun verðbólgu:

„Verðbólga mældist 4,4% á öðrum fjórðungi ársins en var 4,3% í júlí. Almennur verðbólguþrýstingur virðist fara minnkandi, einkum ef litið er til undirliggjandi verðbólgu, þótt hann sé enn nokkur. Svo virðist sem hækkun verðbólguvæntinga fyrr á árinu sé að ganga til baka. Samkvæmt spá Seðlabankans eru þó horfur á að verðbólga hjaðni lítillega hægar en gert var ráð fyrir í maí. Talið er að hún haldist yfir 4% út árið en verði komin í markmið á seinni hluta næsta árs.

Peningastefnunefnd mun beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verðbólga hjaðni aftur í markmið innan ásættanlegs tíma.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dagur segir freistingar hjá stjórnmálafólki að breikka gjá milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar

Dagur segir freistingar hjá stjórnmálafólki að breikka gjá milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum