Vefsíðan opinberumsvif.is er nú komin í loftið en þar geta landsmenn séð lykiltölur um rekstur hins opinbera, hvaðan tekjurnar koma og hvert peningurinn fer.
„Mér finnst það skylda okkar allra sem störfum í stjórnkerfinu að leita leiða til að fara betur með skattfé. Það er ekki síður mikilvægt að fólk fái skýrar upplýsinga rum hvert peningarnir þeirra renna. Þannig höfum við t.d. breytt álagningarseðlum, þannig að fólk getur nú séð hvernig greiðslur skiptast í skatt og útsvar, sem og hvernig þær renna til ólíkra málaflokka. Vefurinn opinberumsvif.is er nýjasti liðurinn í þessari vegferð, þar sem sjá má svart á hvítu hvernig okkur gengur að ná endum saman,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, í tilkynningu.
Afar athyglisvert er að skoða tölurnar inni á síðunni, sérstaklega þegar tekjur hins opinberlega eru skoðuð. Við sjáum nokkur áhugaverð dæmi um tekjur ríkissjóðs á síðasta ári.
En þarna sést að á síðasta árið þénaði ríkið rúmlega fjórfalt sinnum meira á áfengisgjaldinu heldur en af veiðigjaldinu. Meira að segja tóbaksgjaldið skilaði meiru í ríkiskassann en veiðigjöldin.
Að sama skapi má sjá að ríkið þénaði tvöfalt meira af áfengisgjaldinu en bankaskattinum. Kolefnisgjald skilaði rúmlega 3,4 milljörðum í ríkissjóð árið 2020, eða minna en bæði veiðigjöldin og tóbaksgjaldið.
Inn á vefsíðunni má einnig finna upplýsingar um eignir ríkisins og þar er áhugavert að sjá verðmæti eignarhluta ríkisins í fyrirtækjum og félögum á síðasta ári. Þar sést að verðmæti eignarhluta ríkisins í Landsbankanum var töluvert meiri en eignarhlutinn í Seðlabankanum og að sama bragði var eignarhlutinn í Íslandsbanka í lok seinasta árs töluverður.
Hér má einnig sjá verðmæti eignarhluta ríkisins í nokkrum fyrirtækum til viðbótar
Vefsíðan hefur þegar náð athygli netverja. Þingmennirnir Logi Einarsson, Andrés Ingi Jónsson og Helga Vala Helgadóttir hafa öll deilt skjáskotum af síðunni til að benda á áhugaverðan samanburð.
Önnur áhugaverð mynd af https://t.co/x4YVaU2YEB https://t.co/pBUhkqAMbV pic.twitter.com/o9Anqnjc4I
— Andrés Ingi (@andresingi) August 12, 2021
Magnað hvernig ríkisstjórnin aflar tekna til að reka kerfið okkar. Pælið aðeins í þessu. https://t.co/MsqnblzdQA pic.twitter.com/e3SFjKRD4E
— Helga Vala Helgadóttir 🔴 (@Helgavalan) August 12, 2021
Mætti alveg swappa þessari skattatölu, væri þá sennilega léttara yfir þjóðinni og allir sáttir á pöbbnum með bjór á 300 kr. pic.twitter.com/eymeC9IZ3P
— Ólafur Nils Sigurðsson (@olafurns) August 12, 2021
Það er skylda okkar sem störfum í stjórnkerfinu að fara vel með skattfé og veita fólki skýrar upplýsingar um hvert peningarnir þeirra renna.
Í vor breyttum við álagningarseðlunum í þessu skyni og í dag opnum við vef þar sem sjá má stöðuna svart á hvítu.https://t.co/tK42uihsVh
— Bjarni Benediktsson (@Bjarni_Ben) August 12, 2021