Framboðslisti Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi hefur verið kynntur en listanum er stillt upp af slembivöldum hópi meðal félaga flokksins.
Haraldur Ingi Haraldsson, verkefnastjóri hjá Akureyrarbæ, skipar fyrsta sæti listans og Margrét Pétursdóttir, verkakona, það annað.
„Í farvatni ríkisstjórna Sjálfstæðisflokks og þeirra flokka sem hann kallar til fylgis við sig eru stórkarlalegar fyrirætlanir um enn harðari hægri stefnu. Búið er að setja lög sem heimila stórfelldan einkarekstur í vegakerfinu með vegatollum. Fjársvelt heilbrigðiskerfi er eins og þroskaður ávöxtur reiðubúið að falla í körfu einkavæðingarinnar og bankarnir eru matreiddir fyrir aðra einkavæðingu og braskarar sleikja út um af tilhlökkun út af öllum arðgreiðslunum sem bíða handan við hornið,“ segir Haraldur.
„Ég vil breytingar á samfélaginu,“ segir Margrét Pétursdóttir sem skipar annað sæti listans. „Breytingar sem ég hélt að við fengjum eftir Búsáhaldabyltinguna en urðu ekki. Þar má telja nýja stjórnarskrá sem dæmi.“
Listi Sósíalistaflokks Íslands í Norðausturkjördæmi:
1. Haraldur Ingi Haraldsson, verkefnisstjóri
2. Margrét Pétursdóttir, verkakona
3. Guðrún Þórsdóttir, menningarstjóri og ráðgjafi
4. Þorsteinn Bergsson, bóndi
5. Unnur María Máney Bergsveinsdóttir, sirkuslistakona og sagnfræðingur
6. Auður Traustadóttir, sjúkraliði
7. Rúnar Freyr Júlíusson, námsmaður
8. Karolina Sigurðardóttir, verkakona
9. Bergrún Andradóttir, námsmaður
10. Brynja Siguróladóttir, öryrki
11. Stefán L. Rögnvaldsson, bóndi og raunsæisskáld
12. Kolbeinn Agnarsson, sjómaður
13. Halldóra Hafdísardóttir, myndlistarmaður
14. Arinbjörn Árnason, fv. bóndi og bifreiðarstjóri
15. Ari Sigurjónsson, sjómaður
16. Árni Daníel Júlíusson, sagnfræðingur
17. Michal Polacek, lögfræðingur
18. Katrín María Ipaz, þjónn
19. Skúli Skúlason, leiðbeinandi
20. Jóhann Axelsson, prófesssor emeritus