fbpx
Sunnudagur 12.janúar 2025
Eyjan

Dóra Björt krefst svara vegna umdeildu auglýsingarinnar – „Ég þvertek fyrir að Reykjavíkurborg sé bendluð við svona áróður“

Erla Hlynsdóttir
Þriðjudaginn 22. júní 2021 15:30

Dóra Björt Guðjónsdóttir Mynd: Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég styð ekki þessi skilaboð. Ég þvertek fyrir að Reykjavíkurborg sé bendluð við svona áróður og lít það alvarlegum augum. Ekki bara vegna þess hvað ég stend fyrir pólitískt, heldur vegna þess sem Reykjavíkurborg stendur fyrir undir stjórn Pírata,“ segir Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í borginni, um umdeilda auglýsingu sem birtist á dögunum þar sem varað var við skaðsemi kannabisefna.

Íslenska lögregluforlagið og Félag íslenskra fíkniefnalögreglumanna bera ábyrgð á auglýsingunni, en mikill fjöldi fyrirtækja, embætta, stofnanna og sveitarfélaga leggja nafn sitt eða lógó við hana. Þar má nefna Vínbúðina, KFC, Melabúðina, Mjólkursamsöluna, Bakarameistarann, Happdrætti Háskóla Íslands, Mjölni, N1, Samherja, og fleiri.

Rauði krossinn gaf út í gær að nafn þeirra hafi verið birt í auglýsingunni án samþykkis og veltu því upp hvort slíkt ætti við um fleiri.  Þá segir formaður Blaðamannafélags Íslands í samtali við Vísi í dag að félagið hafi verið blekkt til þátttöku í auglýsingunni.

Segja nafn sitt hafa verið birt í umdeildu auglýsingunni án samþykkis – „Kannski lentu fleiri þar án samþykkis“

 

Dóra Björt segir í nýrri Facebookfærslu það vekja athygli að Reykjavíkurborg, Hitt húsið og Bílastæðasjóður skrifi undir auglýsinguna en inntak hennar stangist á við stefnu Reykjavíkurborgar sem hefur skaðaminnkun að leiðarljósi.

„Ég hef beðið um svör við því hvernig það gat gerst að nafn borgarinnar og undirstofnana hafi verið bendluð við þessa auglýsingu. Ég er mjög ósátt við það og mun beita mér fyrir því að svona geti ekki aftur gerst, hafi einhver á vegum borgarinnar komið að þessu máli,“ segir hún.

Þá bendir hún á að inntak auglýsingarinnar gangi einnig í berhögg við þá pólitík sem hún og Píratar standa fyrir. „Gegn hugmyndafræði skaðaminnkunar, fræðslu frekar en hræðslu, auk þess sem hægt er að lesa skilaboðin sem sett fram til höfuðs þingmálum sem minn flokkur hefur staðið fyrir eða tekið þátt í að ýmist leggja grunn að eða hreinlega útbúa eins og frumvörp um afglæpavæðingu og neyslurými sem og þingsályktun um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum og hliðarverkunum vímaefnaneyslu,“ segir hún.

„Ég hef ítrekað og ákaft beitt mér fyrir aukinni skaðaminnkun. Ég hef tryggt í meirihlutasáttmála að þjónusta skuli veitt á forsendum skaðaminnkunar. Ég hef tryggt í meirihlutasáttmála margföldun ,,Húsnæði fyrst“ heimila sem rísa nú um alla borg. Ég hef tryggt í meirihlutasáttmála heimili fyrir konur með geð- og vímuefnavanda sem er nú komið á laggirnar og er eitt flottasta úrræði borgarinnar innan málaflokksins. Ég hef látið afnema notkun blárra ljósa á salernum. Ég hef beitt mér fyrir því að skjól sé tryggt yfir heimilislausar konur í meira mæli og verið er að finna lausnir fyrir þær konur sem búa í bráðabirgðahúsnæði sem komið var upp vegna Covid. Ég hef beitt mér fyrir virku samráði við heimilislaust fólk og fólk með geð- og vímuefnavanda. Ég hef beitt mér fyrir breytingum sem grípa betur börn í vímuefnavanda. Ég hef beitt mér fyrir lagabreytingum svo viðurkenndur sé heilsufarsvandi fólks í langvarandi vímuefnaneyslu. Þetta eru nokkur dæmi,“ segir Dóra Björt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segir fréttir af fylgistapi Flokks fólksins stórlega ýktar því Maskína og fjölmiðlar gleymi mikilvægri staðreynd

Segir fréttir af fylgistapi Flokks fólksins stórlega ýktar því Maskína og fjölmiðlar gleymi mikilvægri staðreynd
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Katrín, Reimar og Salvör endurvekja félag frá sjötta áratugnum

Katrín, Reimar og Salvör endurvekja félag frá sjötta áratugnum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Íbúar í áfalli og vilja fella ferlíkið – „Valdníðslan“ sérlega óprúttin í ljósi þess hverjir búa við Árskóga

Íbúar í áfalli og vilja fella ferlíkið – „Valdníðslan“ sérlega óprúttin í ljósi þess hverjir búa við Árskóga
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Þankar um aga og uppeldi

Björn Jón skrifar: Þankar um aga og uppeldi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Steinunn Ólína skrifar: Ár íss og elda

Steinunn Ólína skrifar: Ár íss og elda
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Svandísi líta framhjá mikilvægu atriði sem átt hafi þátt í falli VG

Segir Svandísi líta framhjá mikilvægu atriði sem átt hafi þátt í falli VG