Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri Grænna, tilkynnti í gær að hann ætli að stíga út úr stjórnmálum á Íslandi eftir að hafa litið í eigin barm gagnvart framkomu sinni gegn konum. Kvartanir höfðu borist fagráði Vinstri Grænna vegna hegðunar hans og samkvæmt yfirlýsingu Kolbeins bárust þær kvartanir áður en hann tilkynnti um fyrirhugað framboð sitt í forvali VG í Reykjavík.
„Það ferli sem þá fór af stað opnaði augu mín fyrir því að ýmislegt hefur verið ábótavant í minni hegðun. Ég ákvað engu að síður að gefa kost á mér í forvali Vinstri grænna í Reykjavík,“ sagði Kolbeinn í yfirlýsingu sinni í gær.
Umræða síðustu daga hafi þó gert það að verkum að hann hafi endurskoðað ákvörðun sína.
Fagráð Vinstri Grænna segir aðeins eitt erindi hafi borist ráðinu vegna Kolbeins og sé það jafnframt eina málið sem borist hafi ráðinu frá því að það tók til starfa árið 2019. Þetta kemur fram í yfirlýsingu fagráðs sem send var á og greint er frá hjá Vísi.
Þar kemur jafnframt fram að í samræmi við verklagsreglur sé málum vísað til lögreglu ef grunur leikur á að um refsivert athæfi sé að ræða. En með refsiverðu athæfi er verið að vísa til brota gegn íslenskum lögum sem heimilt er að beita refsingu við, svo sem brot á borð við kynferðislega áreitni, blygðunarsemisbrot, nauðgun og fleira.
Fagráð vísaði máli Kolbeins ekki til lögreglu og hefur ráðið því ekki talið Kolbein hafa gerist brotlegan við lög samkvæmt því erindi sem þeim barst. Kolbeinn sjálfur vísar þó í yfirlýsingu sinni sem kvartana í fleirtölu.
Hér má sjá yfirlýsingu fagráðs í heild sinni líkt og hún birtist hjá Vísi.
Nú á vormánuðum barst fagráði VG erindi vegna ámælisverðrar hegðunar Kolbeins Óttarssonar Proppé, þingmanns VG.
Við meðferð málsins var farið eftir verklagsreglum sem tilgreindar eru í aðgerðaáætlun VG gegn einelti og kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi.
Í verklagsreglum er gert ráð fyrir að ef grunur sé um refsivert athæfi sé máli vísað til lögreglu, sem ekki átti við í þessu máli.
Fagráðið vann að málinu í samráði við málshefjanda, en trúnaður ríkir um mál sem fagráðinu berast.
Er þetta eina málið sem hefur borist fagráðinu frá því það tók til starfa árið 2019. Verklagsreglurnar og aðgerðaáætlunin eru aðgengilegar á heimasíðu VG.