fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Jóhann Páll segir að hamagangurinn geti orðið tryllingslegri – „Yfirgangurinn mun halda áfram að eitra út frá sér og bitna á okkur öllum“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 26. apríl 2021 15:30

Jóhann Páll Jóhannsson. Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhann Páll Jóhannsson, þingframbjóðandi Samfylkingarinnar, segir að þögn margra þingmanna í Samherjamálinu sé ekki bara sláandi heldur sé „hin virka varðstaða ráðandi stjórnmálaafla um óbreytt fyrirkomulag í sjávarútvegi“ það einnig.

Jóhann segir að í þessu óbreytta fyrirkomulagi sé kvóta úthlutað langt undir markaðsverði og að meirihlutinn fari til örfárra fyrirtækja og fjölskyldna.

„Þetta er kerfið sem gerir eigendum Samherja og annarrastórútgerða kleift að raka til sín arðinum af fiskveiðiauðlindinniog nota hann til að öðlast æ meiri ítök í íslensku viðskiptalífi,“ segir Jóhann í pistli sínum um málið sem birtist á Vísi í dag. „Veiðigjöldin sem útgerðarfyrirtæki greiða fyrir aðgang að auðlindinni hafa lækkað umtalsvert á yfirstandandi kjörtímabili og blikna í samanburði við arðgreiðslurnar sem renna til eigenda fyrirtækjanna.“

Jóhann segir að þessi þróun sé pólitísk ákvörðun stjórnarflokkanna, fólksins sem stjórnar landinu. Jóhann fer þá yfir þá hluti sem hann segir að stjórnarflokkarnir séu að gera. Hann segir til dæmis að stjórnarflokkarnir sitji hjá á meðan kvótinn safnast á hendur æ færri nátengdra fyrirtækja. Hann segir þá viðhalda „ónýtum reglum“ um hármarksaflahlutdeild.

„Þau gelda stofnanirnar sem hafa eftirlit með nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar og skattakúnstum Samherja; fyrst með því að grafa undan starfsgetu Fiskistofu og svo með því að leggja niður embætti skattrannsóknarstjóra. 

Þau styðja við gegndarlausa auðsöfnun hinna fáu með því að viðhalda skattkerfi sem hyglar þeim tekju- og eignamestu á kostnað okkar hinna. 

Þau hunsa ákallið um þjóðareign auðlinda sem kom fram í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012 og leggja í staðinn fram bitlaust ákvæði þar sem hvorki er kveðið skýrt á um tímabindingu afnotaréttarins né eðlilega gjaldtöku.“

„Yfirgangurinn mun halda áfram að eitra út frá sér“

Jóhann segir að stjórnmálamenn hafi búið til svokallaða ofurstétt, þessi ofurstétt eignar sér fiskinn í sjónum við Ísland. Hann kallar þá sem eru í þessari ofurstétt olígarka og vísar þar til hinna rússnesku olígarka sem stjórna Rússlandi bak við tjöldin. Hann segir að olígarkarnir hér á landi eitri og skekkji þjóðmálaumræðu á Íslandi.

Han segir þá kaupa upp fjölmiðla og pólitíkusa og að þeir reki áróðursstríð gegn blaðamönnum, embættismönnum og eftirlitsstofnunum, hverjum þeim sem ógnar sérhagsmunum þeirra. Þá segir hann að þessir svokölluðu olígarkar virðist hafa sagt sig úr lögum við samfélagið hér á landi.

„Yfirgangurinn mun halda áfram að eitra út frá sér og bitna á okkur öllum meðan samherjar Samherja stjórna Íslandi. En búum okkur líka undir að hamagangurinn verði enn tryllingslegri ef ný ríkisstjórn, staðráðin í tryggja almenningi réttmætan arð af auðlindum sjávar, tekur við stjórnartaumunum eftir Alþingiskosningar í haust,“ segir Jóhann í lok pistilsins.

„Þá verða ramakvein Samherjavaldsins staðfesting á því að við séum réttri leið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dagur segir freistingar hjá stjórnmálafólki að breikka gjá milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar

Dagur segir freistingar hjá stjórnmálafólki að breikka gjá milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra

Svarthöfði skrifar: Gott að vita að stóru málin eru í lagi – lofsverð framsýni utanríkisráðherra
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt

Þorsteinn Pálsson skrifar: Miskunnsamur Samverji lögum samkvæmt
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum