Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, veltir því fyrir sér í kjölfar umfjöllunar Kveiks í gærkvöldi um Samherjamálið, hvernig á því stendur að Héraðssaksóknara skorti mannskap til að rannsaka Samherjaskjölin þegar Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra hafi fullyrt að slíkt yrði tryggt.
Oddný skrifar á Facebook:
,,Héraðssaksóknari kvartaði undan skorti á mannskap til að rannsaka Samherjaskjölin í umfjöllun Kveiks í gærkvöldi (18. febrúar 2021).
Í umræðum um fjármögnun eftirlitsaðila vegna Samherjaskjalanna hefur fjármála- og efnahagsráðherra ítrekað sagt að eftirlitsstofnanir séu ekki undirfjármagnaðar og að þær muni fá fjármagn úr varasjóðum ef þörf sé á en hefur greinilega ekki staðið við þau orð. Og fyrir vikið tefst rannsókn á Samherjaskjölunum. Var það meiningin?“
Oddný rifjar upp að í nóvember 2019 sagði hún á Alþingi að fyrirséð væri að héraðssaksóknari og skattrannsóknarstjóri þyrftu aukna fjármuni til að sinna Samherjamálinu og Bjarni hafi tekið þeim áhyggjum hennar óstinnt upp.
Bjarni hafi svarað með eftirfarandi hætti:
,,Það er auðvitað ekkert annað en pólitísk tækifærismennska sem birtist okkur hér í þingsal þegar menn fara fram með þeim hætti að segja ríkisstjórnina, fjármálaráðherrann, ætla að fjársvelta stofnanir þegar við höfum margítrekað sagt að við höfum tekið erindin til alvarlegrar athugunar, við höfum tryggt fjármögnun fyrir skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra nákvæmlega í samræmi við það sem um var beðið og að beiðni héraðssaksóknara sé í eðlilegum farvegi.
Að menn leyfi sér að koma hér upp í þingsal í pólitískri tækifærismennsku, eins og Samfylkingunni er reyndar dálítið tamt að gera, (Forseti hringir.) er bara dapurlegt fyrir flokkinn, dapurlegt fyrir þingið, dapurlegt fyrir þessa mikilvægu umræðu.”
Í þætti
Kveiks í gær sagði Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari, að rannsókn embættisins á Samherjaskjölunum væri umfangsmikil, stór og tæki að öllum líkindum nokkurn tíma. Þegar Samherjamálið hafi fyrst komið upp hafi verið skrifað minnisblað þar sem fram kom að embætti Héraðssaksóknara væri komið að þanmörkum og þá hafi fengist fjárveitingar fyrir sex starfsmönnum til viðbótar. „Það er svolítið þaninn stengurinn hjá okkur en við erum með fólk í þessu óskipt núna,“ sagði Ólafur við Kveik.
„