Markaður Fréttablaðsins skýrir frá þessu í dag. „Núverandi fyrirkomulag er orðið íþyngjandi fyrir lífeyrissjóði,“ er haft eftir Hörpu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra LSR, sem telur löngu tímabært að endurskoða reglur um þak á erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða. „Og helst með það fyrir augum að afnema þær alveg,“ sagði hún einnig.
Samkvæmt lögum þurfa lífeyrissjóðir að takmarka gjaldmiðlaáhættu sína með þeim hætti að tryggja að minnst 50% af heildareignum þeirra séu í sama gjaldmiðli og skuldbindingar þeirra. Hjá stærstu sjóðunum er hlutfall erlendra eigna komið yfir 40%. Þeir eiga því erfitt með að nýta sér 50% svigrúmið til fulls því skammtímasveiflur á gengi krónunnar og verðþróun á mörkuðum getur ýtt hlutfalli erlendra eigna upp fyrir 50% er haft eftir Davíð Rúdólfssyni, forstöðumanni eignastýringar Gildis lífeyrissjóðs.
Sjóðirnir hafa að jafnaði þurft að ráðstafa 300 milljörðum króna í fjárfestingar árlega og hefur sú tala frekar farið hækkandi vegna aukinna uppgreiðslna á sjóðfélagalánum. Harpa benti á að fjárfestingarkostir innanlands séu takmarkaðir en lífeyrissjóðakerfið halda áfram að stækka. Markaður Fréttablaðsins segir að innan lífeyrissjóðanna hafi verið nefnt að eðlilegt hámark erlendra fjárfestinga yrði hækkað í 60%.