Greiðslurnar sem sexmenningarnir í Namibíu hafa verið ákærðir fyrir að þiggja, meðal annars frá Samherja, eru hærri en hingað til hefur verið talið. Þetta kom fram í máli Karls Cloete, rannsóknarlögreglumanns ACC spillingarlögreglunnar í Namibíu, er hann gaf skýrslu fyrir dómi í máli Ricardo Gustavo, eins sexmenninganna í gær. Þetta kemur fram í miðlum í Namibíu og RÚV greinir frá.
Sagði Cloete að upphæðin sem átti að tryggja fyrirtækjum í eigu Íslendinga kvóta í landinu, hafi hækkað úr 103 milljónum namibískra dollara í 130 milljónir, eða um 1,2 milljarða króna. Telur Cloete að upphæðin eigi enn eftir að hækka eftir því sem rannsókninni miði áfram, en hann gagnrýndi stjórnvöld á Íslandi, Angóla, Dúbai og Spáni fyrir að hafa ekki reynst hjálpleg við rannsóknina.
Hefur RÚV eftir Ólafi Þór Haukssyni, héraðssaksóknara, að embættinu hafi borist nokkrar réttarbeiðnir frá Namibíu og engri hafi verið hafnað, en Ólafur sagði við Mannlíf um helgina að kórónuveiran hefði tafið fyrir framgangi málsins.