Líkt og alþjóð veit standa Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) í samningaviðræðum um kjör flugmanna. Samningarnir virðast ganga brösulega, en samkvæmt heimildum DV gekk samninganefnd Icelandair af fundi sem fór fram fyrir tveimur dögum.
Þá hefur DV einnig heimildir fyrir því að Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hafi mótmælt samningafundunum og ekki viljað aðkomu samninganefndar Icelandair. Það hafi aðilar innan samninganefndar Icelandair ekki sætt sig við og látið Boga vita að þeir störfuðu ekki í hans umboði, heldur stjórnar Icelandair.
Nokkrir flugmenn hafa staðfest í samtali við DV að Bogi hafi brugðist við með því að senda tillögur sínar beint til flugmanna félagsins og þannig sniðgengið samninganefndir FÍA og Icelandair.
Fáir flugmenn efist þó um hvar umboðið liggi í raun og því sé um vindhögg að ræða hjá Boga, ekki síst þar sem framganga hans er talin brjóta gegn lögum um stéttarfélög og vinnudeilur frá árinu 1938.
Ekki náðist í Boga Nils Bogason við gerð þessarar fréttar, né í forsvarsmenn FÍA.
Uppfært – Bogi sagðist vonast til að samið yrði fyrir 22. maí, en þá fer fram hlutahafafundur Icelandair. Þetta kemur fram í frétt mbl.is
Tilboðið sem Bogi sendi til flugmanna Icelandair má lesa hér: Tilboð frá Boga
Breytingatillaga að kjarasamningi Icelandair og FÍA má lesa hér: Breytingatillaga Icelandair
DV hefur einnig undir höndum eftirfarandi tölvupóst sem FÍA sendi flugmönnum eftir umræddan fund. Í póstinum segir að Icelandair hafi slitið óformlegum samningaviðræðum og að félagið hafi ekki sýnt neinn samningsvilja, heldur boðið sömu kjörin aftur og aftur.