Flóttamannavandinn í Grikklandi ágerist nú á nýjan leik. Við sjáum nýskeð í Kveik sláandi umfjöllun um aðstæður í flóttamannabúðum á eyjunni Lesbos. Það er ljóst að Grikkir ráða ekki við þennan vanda enda vart komnir úr djúpri kreppu sem á varla sinn líka á Vesturlöndum í seinni tíð.
Nú hafa Tyrkir brugðið á það ráð að opna land sitt fyrir straumi flóttamanna sem kemur frá Sýrlandi. Manngrúanum er stefnt til Grikklands. Samskipti Grikkja og Tyrkja hafa farið mjög versnandi undanfarið vegna yfirgangs Erdogans forseta og duttlungafullrar hegðunar hans. Þannig búa Grikkir nú við stöðugar ögranir frá Tyrkjum. Og nú er Erdogan að nota flóttafólk líkt og vopn.
Grikkir hafa brugðið á það ráð að loka landamærum sínum eins og hægt er. Ríkisstjórnin segist ekki munu taka við nýjum umsóknum um hæli næsta mánuðinn. Það hefur komið til átaka milli lögreglu og flóttafólks.
Þetta er afar sorgleg saga. Flóttafólkið vill komast til Evrópu en eins og mál hafa þróast undanfarin ár eru það Grikkir sem sitja uppi með vandann. Evrópusambandið gerir alltof lítið til að hjálpa, horfir helst í hina áttina –Bandaríkin og Rússland sem beinlínis hafa tekið þátt í stríðsátökum gera ekkert fyrir flóttamennina – og nú lýsa Sameinuðu þjóðirnar því yfir að Grikkir megi ekki hætta að taka við hælisumsóknum. Að líkindum virðir gríska stjórnin það að vettugi.
En þetta er óþolandi ástand. Tyrkir hafa náttúrlega sinn mikla fjölda flóttafólks. En þeir standa líka í stríðsátökum en þar liggur uppruni hins mikla fólksflótta. Grikkir eiga hins vegar enga aðild þar að. Þeir þurfa að bera þunga bagga vegna ógnaratburða sem þeir eiga engan þátt í að orsaka.