Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, sósíalisti og frambjóðandi í formanns- og stjórnarkjöri Félags eldri borgara, fer ófögrum orðum um Ögmund Jónason, fyrrverandi ráðherra og þingmann Vinstri grænna í Facebookhópi Sósíalistaflokks Íslands í dag.
Tilefnið er grein Ögmundar um að hann vilji verðtrygginguna burt og tímabundna núll prósent vexti vegna efnahagsáhrifa kórónuveirunnar.
Haukur segir þetta skjóta skökku við hjá Ögmundi, þar sem Ögmundur sjálfur hafi staðið á bak við verðtrygginguna árið 1982:
„Þessi maður – Ögmundur Jónasson – er höfundur þeirrar tegundar verðtryggingarinnar sem hækkar höfuðstól lána og gerir almenning eignalausan. Það var árið 1982 sem hann barðist fyrir þessu og fékk framgengt. Þá var ég andstæðingur hans fyrirætlana og hef nánast alltaf verið það síðan,“
segir Haukur og sakar Ögmund um siðblindu:
„Hann er að mínu viti versti siðblindingi sem vinstri hreyfingin hefur átt (kannast aldrei við eigin verk – eins og t.d. skemmdarverkin gagnvart almenningi sem unnin voru 2009-2013 þegar hann var ráðherra (hann ber ábyrgð á því að um 10.000 manns missti heimili sín vegna verðtryggingarinnar) og hann fór svo frá stjórninni í lok stjórnartímabilsins til að sýnast saklaus) og lýðskrumari á sama plani og Sigmundur Davíð (væri til í að fara í kröfugöngu gegn verðtryggingu sem hækkaði höfuðstól – sem hann kom á sjálfur). Við þurfum að varast þennan mann. Hann er eyðileggingarafl.“
Haukur týnir til dæmi um verk Ögmundar sem hann telur rökstyðja fullyrðingu sína:
„Sem dæmi um verk hans er að Vg hefur hindrað breytingar á kvótakerfinu alla tíð – og sveik almenning í því máli í ríkisstjórninni 2009-2013. Nú hamast Ögmundur gegn kvótakerfinu en ber sjálfur ábyrgð á því,“
segir Haukur, en Ögmundur og Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, hafa staðið fyrir baráttufundum um land allt undir yfirskriftinni Gerum Ísland heilt á ný – kvótann heim. Ekki er víst hvernig þessi gagnrýni Hauks fer í Gunnar Smára, en Haukur á sæti í framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins.
Þá segir Haukur að lokum:
„Vinstri“-menn sem hafa svikið hagsmuni almennings í 4 áratugi – geta ekki barið sér á brjóst núna og sagt: „Ég er nýr og betri maður“. Þeir hafa átt sitt tækifæri. Munum hvað ríkisstjórnin 2009-2013 gerði í kvótamálinu. Við megum ekki halla okkur að lukkuriddurum – enda þótt siðblindingar séu nánast alltaf sjarmerandi stjórnmálamenn. Því þá ekki að fá ó-sjarmerandi foringja eins og Sanders – bara ef hann er heiðarlegur !“
Ögmundur sagði í skriflegu svari við Eyjuna að allt væri þetta rangt hjá Hauki og tekur dæmi:
„Allt sem Haukur Arnþórsson heldur fram í þessu kostulega skrifi sínu er rangt.
Uppfært –
Þess skal getið að Haukur eyddi færslu sinni á Facebook í kjölfar fréttarinnar.