fbpx
Sunnudagur 22.desember 2024
Eyjan

Það er og hefur alltaf verið eitthvað bogið við hvernig dómarar eru skipaðir á Íslandi segir Aðalheiður

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 2. desember 2020 07:50

Aðalheiður Ámundadóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Allir helstu valdhafar brugðust í Landsréttarmálinu,“ segir í upphafi greinar eftir Aðalheiði Ámundadóttur í Fréttablaðinu í dag. Greinin ber yfirskriftina 17-0 og er þar vísað til einróma niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu í gær um að ekki hefði verið staðið rétt að skipun dómara í Landsrétt.

Aðalheiður bendir á að allir valdhafar hafi brugðist. Dómsmálaráðherra, sem var Sigríður Á. Andersen, hafi sýnt reglunum, sem átti að fylgja við skipun dómara algert skeytingarleysi sem hafi haft þær afleiðingar að borgararnir gátu ekki treyst því af hvaða hvötum hún tók ákvarðanir í málinu. Alþingi brást einnig segir hún með því að fara í bága við eigin löggjöf sem var ætlað að tryggja vandað ferli og lágmarka hættu á að flokkshagsmunir réðu för. Hún segir að forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, fái einnig sinn skerf í dómi Mannréttindadómstólsins því hann hafi blessað hina ólögmætu málsmeðferð við skipun dómara með því að skrifa undir skipunarbréf Arnfríðar Einarsdóttur.

„Það er sorglegt að sitjandi dómsmálaráðherra sé ekki ánægðari með þessa niðurstöðu en raun ber vitni. Vonbrigði hennar með niðurstöðuna hljóta að vera í andstöðu við viðhorf þorra Íslendinga, sem þvert á móti upplifa létti við að fá dómsorð frá virtum fjölskipuðum dómstól um það sem þeir vissu allan tímann: Það er og hefur alltaf verið eitthvað bogið við hvernig dómarar eru skipaðir á Íslandi,“ segir Aðalheiður og bætir við: „Loksins fær sá flokkur sem stýrt hefur dómsmálaráðuneytinu, nánast óslitið í lýðveldissögunni, ítarlega leiðsögn um hvernig á að fara að lögum þegar dómarar eru skipaðir og hvers vegna má alls ekki fara í bága við slík lög. Sú leiðsögn ætti að vera fagnaðarefni fyrir ráðherra og það eru vonbrigði að hún líti ekki þannig á málið, ekki síst í ljósi þess að hún er, enn sem komið er, saklaus af vitleysunni.“

Hún víkur síðan að Sigríði Á. Andersen og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð: „Það var Sigríður Á. Andersen sem setti alla vitleysuna af stað af umdeildum ástæðum. Henni var gert að víkja. Við tók Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir sem hélt uppteknum hætti og tók málið í eigið fang í stað þess að láta staðar numið og leyfa íslenskum borgurum að eiga dómsorð um að fara skuli að lögum í landinu. Þórdís Kolbrún kaus að berjast fyrir fráleitum málstað og halda með því dómskerfinu í spennitreyju í 18 mánuði, án þess að geta nokkru sinni útskýrt hvaða brýnu hagsmuni land og þjóð hefðu af því að fá þeirri afstöðu hrundið að fara þyrfti að landslögum við skipun dómara. Hún tapaði en þjóðin vann, 17-0.“

Hún endar grein sína síðan á þessum orðum: „Þegar öllu er á botninn hvolft virðast engir hagsmunir hafa legið að baki því að óska eftir endurskoðun dómsins nema hagsmunir Sjálfstæðisflokksins og þeirra dómara sem ráðherrar þess flokks hafa skipað með ólögmætum hætti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Björn reynir að túlka afhroð ríkisstjórnarinnar sem ákall um hægri stjórn

Orðið á götunni: Björn reynir að túlka afhroð ríkisstjórnarinnar sem ákall um hægri stjórn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þrír nýir forstöðumenn hjá OK

Þrír nýir forstöðumenn hjá OK