fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Hinsegin fræðsla til íþróttafélaga – tímamótasamningur undirritaður

Erla Hlynsdóttir
Miðvikudaginn 16. desember 2020 15:06

mynd/hinsegindagar.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavíkurborg og Samtökin ’78 undirrituðu í dag þjónustusamning til þriggja ára en þar er í fyrsta sinn fjármagn merkt hinsegin fræðslu til íþróttafélaga.

Samningurinn felur í sér fræðslu til barna og ungmenna í grunnskólum og frístundastarfi borgarinnar. Einnig er styrkur fyrir félags og ráðgjafaþjónustu fyrir hinsegin fólk í borginni og aðstandendur þeirra. Fjármagn fer einnig í rekstur hinsegin félagsmiðstöðvar og rekstur skrifstofu Samtaka ’78.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Aukning hjá hinsegin félagsmiðstöðinni

Hinsegin fræðsla innan íþróttabandalags Reykjavíkur, sem er ný af nálinni, felst í fræðslu til starfsfólks og sjálfboðaliða félaganna.

Auk árlegs framlags að upphæð 8.7 milljónir króna til Samtakanna ’78 vegna samningsins er gert ráð fyrir að tvær milljónir verði greiddar af mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu til reksturs hinsegin félagsmiðstöðvar á árinu 2021.

Á síðastliðnum árum hefur aðsókn í hinsegin félagsmiðstöð Tjarnarinnar og Samtakanna ’78 stóraukist og í haust hafa mætt yfir hundrað ungmenni í hverri viku.

Regnbogavottun borgarinnar

Reykjavíkurborg hefur, eitt sveitarfélaga,  frá árinu 2017 verið með sérfræðing í málefnum hinsegin fólks sem vinnur að verkefnum tengdum hinsegin málefnum. Þannig hefur Reykjavíkurborg lagt sitt af mörkum til þess að auka þekkingu og veita fræðslu innan kerfis sem utan.

Borgin hefur m.a. ráðist í verkefni um hinsegin fólk og heimilisofbeldi, gert gátlista um trans og hinsegin börn í skólum ásamt því að gera sérstaka upplýsingasíðu. 

Þá hefur regnbogavottun Reykjavíkurborgar litið dagsins ljós, en tilgangur hennar er að gera starfsstaði og þjónustu borgarinnar hinseginvænni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Straumfall til vinstri í sjö ár

Þorsteinn Pálsson skrifar: Straumfall til vinstri í sjö ár
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi