fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Sólborg leiðir starfshóp um eflingu kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum

Erla Hlynsdóttir
Þriðjudaginn 15. desember 2020 09:47

Sólborg Guðbrandsdóttir. Mynd/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólborg Guðbrandsdóttir, fyrirlesari og höfundur bókarinnar Fávitar, leiðir nýskipaðan starfshóp um eflingu kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum.

Í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu segir: „Starfshópur um eflingu kynfræðslu í skólum hefur nú verið skipaður af mennta- og menningarmálaráðherra. Í kjölfar umræðu í samfélaginu og ábendinga frá nemendum boðaði ráðherra til fundar á dögunum með aðilum sem hafa með virkum hætti látið sig málefnið varða. Niðurstaða hans var að starfshópur myndi koma með tillögur að aðgerðum hið fyrsta. Hópurinn mun skila áfangaskýrslu með kostnaðarmetnum og tímasettum aðgerðartillögum fyrir lok febrúar og ljúka störfum í lok maí 2021.“

Starfshópnum er m.a. falið að:

  • gera tillögu að framkvæmd kennslu í kynfræðslu og ofbeldisforvörnum á grunn- og framhaldsskólastigi
  • láta vinna stöðukönnun á framkvæmd kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum þar sem m.a. komi fram viðhorf skólastjórnenda, nemenda og kennara
  • taka afstöðu til hvort og þá hvaða breytingar þurfi að gera á aðalnámskrám grunn- og framhaldsskóla, á inntaki kennaramenntunar, hlutverki skólahjúkrunarfræðinga, námsráðgjafa og tómstundafræðinga til að kynfræðsla á þessum skólastigum verði með fullnægjandi hætti
  • gera tillögur um með hvaða hætti best sé að miðla fræðslu um kynlíf og kynheilbrigði

Konur eru í meirihluta í hópnum, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir ráðuneytisins til að jafna kynjahalla, að því er kemur fram í tilkynningu.

Áherslur hópsins munu taka mið af aðgerðum sem fjallað er um í þingsályktun um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess og þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni.

Starfshópinn skipa:

Sólborg Guðbrandsdóttir, fyrirlesari og formaður hópsins, án tilnefningar,

Sigríður Dögg Arnardóttir kynfræðingur og rithöfundur án tilnefningar,

Sóley Sesselja Bender, prófessor og forstöðumaður fræðasviðs um kynheilbrigði í Háskóla Íslands, án tilnefningar,

Unnur Þöll Benediktsdóttir, án tilnefningar,

Sigurþór Maggi Snorrason, Samband íslenskra framhaldsskólanema,

Ingólfur Atli Ingason, Samfés – landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi,

Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, Samband íslenskra sveitarfélaga,

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, Kennarasamband Íslands

Sigrún Sóley Jökulsdóttir, Menntamálastofnun,

Ása Sjöfn Lórensdóttir, Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar,

Ingibjörg Guðmundsdóttir, Embætti landlæknis,

Þóra Björt Sveinsdóttir, Stígamót,

Indíana Rós Ægisdóttir, Kynís – Kynfræðifélagi Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína

Þorsteinn Pálsson: VG út og Samfylking inn eða hrein vinstri stjórn nema miðjuflokkarnir bæti stöðu sína
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Straumfall til vinstri í sjö ár

Þorsteinn Pálsson skrifar: Straumfall til vinstri í sjö ár
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu

Flugfélög: Icelandair stundvísast allra stærri flugfélaga í Evrópu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna

Forsætisráðherra Grænlands heimsótti íslensku gullvinnsluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“

Ragnar Þór harðorður í garð stjórnmálamanna sem reyni að gera PISA að kynjamáli – „Harðsvíruð tilraun til að drepa málinu á dreif“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi

Sigrún og Andrea í framkvæmdastjórn Coca-Cola á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum

Lífskjör: Kaupmáttur á Íslandi mun minni en hjá nágrannaþjóðum – þriðjungi meiri í Færeyjum
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi

Guðlaugur Þór hefur miklar efasemdir um fyrirhugaða þéttingu byggðar í Grafarvogi