Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Sigurði Inga að staða sveitarfélaganna sé mismunandi og því ekki sanngjarnt að deila út ríkisaðstoð til þeirra allra.
„Það eru til sveitarfélög sem fullnýta ekki sína tekjustofna, standa vel og eru því að leggja minna af mörkum til samneyslunnar. Það væri því skrítið fyrir ríkissjóð að taka lán til að styrkja öll sveitarfélög jafnt. Mér litist betur á að framlengja úrræði ríkisstjórnarinnar, sama hvort það heitir hlutabætur eða lengri tekjutenging atvinnuleysisbóta, til að tryggja tekjustofna sveitarfélaganna og styðja við getu heimila til að borga sín þjónustugjöld,“
er haft eftir honum.
Fram kemur að samkvæmt gögnum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hafi útsvarstekjur sveitarfélaga verið hærri á fyrstu tíu mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra. Skýringuna má finna í ýmsum úrræðum stjórnvalda.