Fréttaskýringarþátturinn Spegillinn segist standa við pistil sem birtur var á mánudag þar sem fjallað var um eftirfylgniskýrslu GRECO samtakanna.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir gagnrýndi fréttaflutning fréttamanns RÚV um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við tilmælum GRECO, en í skýrslu frá 2018 var fjölda tilmæla beint til íslenskra stjórnvalda og hefur verið farið eftir litlum hluta þeirra svo nægjanlegt þyki. Af 18 tilmælum taldi GRECO að Ísland hafi farið eftir fjórum þeirra með fullnægjandi hætti. Sjö tilmælum hafi verið fylgt að hluta og sjö tilmælum hafi alls ekki verið farið eftir.
Spegillinn fjallaði um að munur hafi verið á því hvernig dómsmálaráðuneyti annars vegar og forsætisráðuneyti hins vegar hafi farið eftir tilmælunum.
Áslaug Arna sagði að fréttamaður RÚV hafi reynt að gera lítið úr því sem dómsmálaráðuneytið hefur gert til að verða við tilmælum GRECO og að gefið hafi verið tilkynna að ráðuneytið hefði hvorki áhuga né vilja á aðgerðum gegn spillingu.
Benti Áslaug á að talsmaður GRECO hafi farið lofsamlegum oðrum um vinnu ráðuneytisins. Áslaug sagði ennfremur:
„Greiðendur útvarpsgjaldsins eiga rétt á því að greint sé rétt frá. Ýmislegt hefur verið aðhafst í málefnum lögreglunnar undanfarið og frekari breytingar til hins betra eru framundan“
Sagði hún fréttamann „útvarps alldra landsmanna“ hafa kosið að afflytja málið og lýsa pólitískri afstöðu án tengsla við staðreyndir.
Þessu hafnar Spegillinn í yfirlýsingu sem birtist hjá RÚV þar sem Spegillinn segist standa við fréttaflutning sinn.
„Orð ráðherra um að fréttamaður hafi ekki greint rétt frá eru tilhæfulaus. Spegillinn hafnar því algerlega að í pistlinum hafi verið lýst yfir pólitískri afstöðu án tengsla við staðreyndir. Ráðherra hefur ekki sent fréttastofu RÚV formlega athugasemd vegna pistilsins.“