Rætt var við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur í Vikulokunum á Rás 1 í morgun. Þar velti hún fyrir sér þeirri gagnrýni á sóttvarnaaðgerðir og skerðingu á frelsi sem hefur komið frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, þeim Sigríði Á. Andersen og Brynjari Níelssyni.
Sigríður hefur talað um að henni finnist inngrip í friðhelgi einkalífsins vera of mikið í faraldrinum og Brynjar vill að sóttvarnaaðgerðum sé aðallega beint að fólki í áhættuhópum. Þá sagðist Brynjar einnig ekki trúa tölfræði um að fimmtungur þjóðarinnar sé í áhættuhóp.
Í útvarpsþættinum sagðist Þóra furða sig á tillögum um að beina sóttvarnaaðgerðum sérstaklega að fólki í áhættuhópum. „Hvar á að stúka þá af? Hver á að hugsa um þetta fólk?“ spurði Þóra. Ætla þau að dæma fólkið sem fær lúsarlaun fyrir sitt framlag til heilbrigðisþjónustunnar, til dæmis þessar umönnunarstéttir. Eiga þær að missa öll mannréttindi á meðan þessi faraldur gengur yfir? Á að loka þá bara inni á stofnunum með þessu fólki? Það er enginn einföld lausn við þessu.“
Þóra sagði þá einnig að það væri furðulegt að Sigríður og Brynjar kæmu með þessa gagnrýni sína án þess að koma með raunverulegar lausnir. „Hvað eru þau eiginlega að leggja til? Er ekki kominn tími til að þau gangi bara hreint til verks og segi það. Ef Brynjar og Sigríður eru að stinga upp á því að þessum hópum sem eru veikastir fyrir verði fleygt fyrir ætternisstapa, þá eiga þau bara að koma fram og segja það.“