„Ef þú telur löglegu atkvæðin þá sigra ég,“
sagði Trump á fréttamannafundinum. Hann stærði sig af eigin árangri í kosningunum áður en hann réðst á fjölmiðla, Demókrata og stóru tæknifyrirtækin fyrir kosningasvindl.
„Það er mikil spilling í mörgum ríkjum og svindl með bréfatkvæðin. Ég sagði að þetta myndi gerast,“
sagði forsetinn sem yfirgaf síðan fréttamannafundinn án þess að svara spurningum fréttamanna en það er mjög óvenjulegt.
Ellen Weintraub, formaður landskjörstjórnar, hjólaði í Trump að fréttamannafundinum loknum:
„Nú er nóg komið herra forseti. Nóg. Að dæla út samsæriskenningum um kosningarnar breytir ekki úrslitunum. Atkvæði hafa verið greidd. Þau verða talin. Vilji kjósenda mun ná fram að ganga. Lygar þínar grafa undan lýðræðinu okkar og skaða landið. Hættu þessu.“
New York Times fer ekki mjúkum höndum um ræðu Trump og segir að hann hafi sett fram óhugnanlegar lygar. NBC og ABC rufu útsendingu frá fundinum til að leiðrétta það sem Trump sagði.
Nokkrum klukkustundum áður en Trump flutti ræðu sína ávarpaði keppinautur hans, Joe Biden, fréttamenn. Hann hvatti fólk til að halda ró sinni á meðan atkvæði eru talin og hann sagðist bjartsýnn á að sigra en vildi ekki lýsa sig sigurvegara. Hann ræddi einnig um hina grafalvarlegu stöðu sem er uppi í landinu vegna kórónuveirufaraldursins og sendi samúðarkveðjur til þeirra sem eiga um sárt að binda.
Þegar þetta er skrifað er enn verið að telja atkvæði í lykilríkjunum Pennsylvania og Gerorgíu auk Arizona. Í Arizona er búið að telja 90% atkvæða og hefur Biden fengið 50,1% þeirra en Trump 48,5%. Í Pennsylvania er búið að telja 95% atkvæða, Biden hefur hlotið 49,2% þeirra en Trump 49,5%. Í Georgíu er búið að telja 99% atkvæða, Biden hefur hlotið 49,4% þeirra og Trump sömuleiðis. Aðeins munar tæplega 2.000 atkvæðum á þeim þar, Trump í vil. Þetta er miðað við tölur sem CNN birti.