Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Segir blaðið að innan Framsóknarflokksins og Vinstri grænna ríki hins vegar algjör samstaða um aðgerðir heilbrigðisráðherra.
Blaðið segist einnig hafa heimildir fyrir að dregið hafi úr óeiningunni um aðgerðirnar á síðustu dögum vegna þess á hve miklu skriði faraldurinn er. Það er hins vegar sagt hafa vakið undrun ráðherra og þingmanna Sjálfstæðisflokksins að heilbrigðisráðherra hafi ekki rætt nýjar tillögu sóttvarnalæknis, um hertar aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu, í ríkisstjórn eins og venja hefur verið.
Fleiri, en þeir þingmenn sem hafa tjáð sig opinberlega, eru sagðir hafa efasemdir um aðgerðirnar og eru margir sagði hafa áhyggjur af að of langt sé gengið í að láta sérfræðinga ráða ferðinni því verið sé að takmarka athafnafrelsi fólks mjög með þessum aðgerðum. Því sé eðlilegast að lýðræðislega kjörnir fulltrúar komi meira að ákvarðantökunni.
Áhyggjur eru sagðar vera uppi af því að ekki sé tekið nægilega mikið tillit til afleiðinga sóttvarnaaðgerðanna en þær hafa miklar afleiðingar efnhagslega sem og félagslega.
„Ráðstafanir vegna sóttvarnaaðgerða eru auðvitað stöðugt til umræðu á okkar vettvangi í þingflokknum og ný sjónarmið rædd um þau skref sem eru tekin. Að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um umræður sem eiga sér stað á vettvangi þingf lokksins,“
hefur Fréttablaðið eftir Birgi Ármannsyni, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins.