Þingmaður Samfylkingarinnar, Ágúst Ólafur Ágústsson, vakti athygli á laugardag þegar hann sem gestur í Sprengisandi á Bylgjunni kenndi sitjandi ríkisstjórn við Bjarna Benediktsson, en líkt og flestir vita þá er Bjarni fjármálaráðherra en ríkisstjórnir landsins eru kenndar við forsætisráðherra sem í dag er Katrín Jakobsdóttir hjá Vinstri Grænum.
Þáttastjórnendur bentu Ágústi Ólafi á mistökin og tók hann þá fram að það væri vel þekkt staðreynd að Bjarni Benediktsson færi með raunveruleg völd, ekki Katrín.
Málið hefur vakið mikla athygli og hefur Ágúst Ólafur verið sakaður um kvenfyrirlitningu.
„Ágúst Ólafur. Finndu þér eitthvað annað að gera. Þú átt ekkert erindi inn á Alþingi jafn illa haldinn af kvenfyrirlitningu og raun ber vitni. Þetta er ekki í fyrsta sinn….,“ tístir Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri Grænna.
Ágúst Ólafur. Finndu þér eitthvað annað að gera. Þú átt ekkert erindi á Alþingi jafn illa haldinn af kvenfyrirlitningu og raun ber vitni. Þetta er ekki í fyrsta sinn …
— Líf Magneudóttir (@lifmagn) October 4, 2020
„Botnlaus kvenfyrirlitning. Og ekki í fyrsta sinn,“ tísti Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra um málið.
Botnlaus kvenfyrirlitning. Og ekki í fyrsta sinn. https://t.co/4cWP4LcnQl
— Svandís Svavarsd (@svasva) October 5, 2020
„Hvers konar eiginlega virðing er þetta við leiðtoga á borð við Katrínu sem er talin einn áhrifamesti leiðtogi heims. Þarf t.d. að efast um áhrif sem HÚN og ríkisstjórn hennar tala fyrir og um á Alþjóðavettvangi. Algjör reynslubolti,“ skrifar Hulda Bjarnadóttir, fyrrverandi fjölmiðlakona og starfsmaður á mannauðssviði Marel, á Facebook.
Furðar Hulda sig á því að Ágúst Ólafur, sem að jafnaði tali fyrir jafnrétti kynjanna og mikilvægi þess geti látið þessi ummæli falla. „Þó að mér finnist hann góður að mörgu leyti, þá skil ég ekki hvernig þingmaður sem talar fyrir jafnrétti og mikilvægi þess, getur talað svona um kvenleiðtoga sem mun fara í sögubækur sem einn merkasti leiðtogi Íslandssögunnar.“
Margir tjá sig jafnframt um málið undir færslu Huldu.
„Mikilvæg ábending til allra sem eru að ræða stjórnmál. Það er ansi oft sem sjálfstæði kvenna í pólitík er dregið í efa og rætt um okkur sem handbendi karla. Ég geri allt sem Dagur segir mér, Sigmundur Davíð stjórnaði Lilju, Gunnar Smári – Sönnu og svo frv…n oft ekki hugsað en er skaðlegt fyrir jafnréttisbaráttuna.“
„Það var alls ekki ætlun mín að gera litið úr forystuhlutverki Katrínar og biðst ég afsökunar á því. Ég var að reyna að gagnrýna Bjarna og hans pólitík. Auðvitað ber Katrín ábyrgð á þessari ríkisstjórn og fjárlögunum.“