Alþingi hefur nú birt upplýsingar um greiddan kostnað þingmanna fyrir alla mánuði síðasta árs. Þar má sjá ferðakostnað þingmanna, bæði innanlands – og utan. Kjarninn greinir einnig frá.
Þegar ferðakostnaður innanlands er skoðaður sést að Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, trónir sem fyrr í efsta sæti, en kostnaður skattgreiðenda við akstur hans nam um 3.8 milljónum króna árið 2019. Er það rúmlega 50% meiri kostnaður en árið á undan, en þá keyrði Ásmundur fyrir 2.7 milljónir. Að meðaltali keyrði Ásmundur því fyrir 320 þúsund krónur á mánuði í fyrra.
Frá því að Ásmundur settist á þing árið 2013 hefur samanlagður aksturskostnaður hans verið 29.2 milljónir króna. Hæstur var kostnaðurinn árið 2014, eða 5.4 milljónir króna.
Akstursgreiðslur voru fyrst opinberaðar í byrjun árs 2018 og sætti Ásmundur harðri gagnrýni fyrir og taldi hann sig sæta eineltis vegna málsins. Í ljós kom að hann hafði fengið endurgreiddan aksturspening sem hann átti ekki rétt á, sem hann síðan endurgreiddi til Alþingis. Fékk hann mesta gagnrýni frá Pírötum, sem að lokum leiddi til þess að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, naut þess vafasama heiðurs að vera fyrsti þingmaður Íslands sem Siðanefnd Alþingis taldi að hefði gerst brotlegur við siðareglur þingsins, er hún sagði í sjónvarpsþætti að rökstuddur grunur væri uppi um að Ásmundur hefði dregið að sér almannafé.
Ásmundur sker sig nokkuð úr hópi þeirra þingmanna sem fá mestar endurgreiðslur frá Alþingi. Næstur í röðinni er Miðflokksmaðurinn Birgir Þórarinsson með 2.6 milljónir, en fjórir þingmenn fara yfir tveggja milljón króna markið og keyrðu fyrir alls 11.3 milljónir.
Alls eru tólf þingmenn sem keyrðu fyrir meira en eina milljón á síðasta ári, fyrir um 23 milljónir alls. Má sjá þá hér í töflunni að neðan. Upphæðirnar eru í milljónum króna:
Sjá einnig: Endurgreiðslur vegna aksturs Ásmundar 40% hærri en í fyrra – „Eigum langt í land með gagnsæi“
Sjá einnig: Ásmundur fengið rúmar 23 milljónir vegna aksturs
Sjá einnig: Um þrefalt meiri akstur hjá þingmönnum í kosningaham – Skattgreiðendur borga (bensín)brúsann