Sem kunnugt er verður Stefán Eiríksson, borgarritari, nýr útvarpsstjóri frá og með 1. mars. Stefán, sem er fyrrverandi lögreglustjóri, nýtur þó ekki trausts allra, því Kolbrún Baldursdóttir, oddviti Flokks Fólksins í Reykjavík, telur að fréttaflutningur RÚV af borgarmálum verði litaður af ráðningu Stefáns og dregur hlutleysi Stefáns og þar með fréttastofu RÚV í efa, vegna vinskapar Stefáns við borgarstjóra:
„Ég veit svo sem ekki hvernig ruv virkar en mér er nú bara smá brugðið. Er fólk ekki hrætt um að hér séu hagsmunaárekstrar? Nú verður okkur í minnihlutanum bara úthúðað á ruv og sagðar bara einhverjar englafréttir af meirihlutanum í borginni:) Dagur á þarna aldeilis góðan vin, hauk í horni. Það er þetta með hlutleysi og allt það? Kannski erfitt að vera alveg hlutlaus og sennilega er enginn alveg hlutlaus en þetta er kannski aðeins of mikið. En skal ekki segja, ég er nú bara að tala út frá tilfinningu núna og tilfinningar eru hvorki réttar né rangar.“
Viðbrögð Kolbrúnar eru nokkuð á skjön við almenningsálitið ef marka má samfélagsmiðla, hvar flestir telja Stefán vel til starfsins kominn.