Rio Tinto í Straumsvík hyggst draga úr álframleiðslu sinni í ár, en til stendur að framleiða aðeins 184 þúsund tonn á þessu ári, samanborið við 212 þúsund tonn í fyrra. Hefur reksturinn verið erfiður undanfarin ár og árið 2017 var ákveðið að fara í söluferli á verksmiðjunni.
Kolbeinn Gunnarsson, formaður verkalýðsfélagsins Hlífar í Hafnarfirði lýsir áhyggjum sínum af stöðu mála í Morgunblaðinu í dag hvar hann óttast að til uppsagna komi í kjölfarið, en á þriðja hundrað félagsmanna Hlífar starfa í eða við álverið í Straumsvík:
„Auðvitað ber maður kvíðboga gagnvart stöðu starfsfólks þegar stór vinnuveitandi þarf að draga saman seglin. Auðvitað geta aðstæður alltaf breyst en okkur er sagt að fremur eigi að draga úr hliðarverkefnum ýmiskonar, þjónustukaupum og svo framvegis. Komi hins vegar til fækkunar starfsmanna vænti ég þess að fundnar verði mjúkar leiðir, svo sem að menn sem nálgast eftirlaun hætti fyrr og svo framvegis,“
segir Kolbeinn sem hefur fengið þær upplýsingar að minni framleiðsla eigi ekki að þýða fækkun starfsmanna, en Hlíf hefur unnið að sérkjarasamningi við Rio Tinto sem nú sér fyrir endann á, en Kolbeinn segist vona að nýjar aðstæður valdi ekki bakslagi.
Kristján Þórður Snæbjarnason er formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, en 35 félagsmenn vinna í álverinu. Hann segir stöðu þeirra óbreytta, en hefur einnig áhyggjur af sínu fólki:
„Erfiður rekstur álversins og tæknileg vandamál í framleiðslunni á síðustu árum eru þó áhyggjuefni.“