„Ég held ekki að það sé gott kerfi þar sem stjórnmálamenn hafa afskipti af einstaka málum,“ sagði Katrín þegar hún var spurð hvort það ætti að leyfa egypsku fjölskyldunni að vera hér á landi en til stendur að vísa henni úr landi á morgun. „Við þurfum auðvitað að segja það eins og það er, við erum ekki að taka á móti öllum þeim sem hér sækja um alþjóðlega vernd, við erum ekki að veita þeim öllum alþjóðlega vernd. En það breytir því ekki að við höfum verið að taka á móti fleirum en áður og erum þar af leiðandi að leggja okkar af mörkum til þess að sýna ábyrgð í þessu alþjóðasamfélagi.“
Þegar Katrín var spurð hvort það væri útlit fyrir því að ríkisstjórnin grípi inn í mál egypsku fjölskyldunnar. „Þetta er ekki fyrsta brottvísunin, þetta mál,“ sagði Katrín við því en þessi ummæli hafa vakið athygli á samfélagsmiðlinum Twitter.
Þá bendir einn notandi á ræðu Katrínar á Alþingi frá því fyrir síðustu Alþingiskosningar en þá gerði hún málefni flóttafólks að sérstöku umræðuefni. „Það eru 65 milljónir manna á flótta. Helmingur þeirra er börn. Þessi börn hafa ekkert til þess unnið að vera svipt framtíð sinni. Þetta gætu verið börnin okkar. Við getum hjálpað fleirum en við gerum núna og við eigum að hjálpa fleirum en við gerum núna,“ sagði Katrín þá.
Katrín sagði síðan daginn eftir á Alþingi að það væri mikilvægt að hlusta á málefni barna. „Þegar framkvæmd laga sem varðar fólk í sérstaklega viðkvæmri stöðu, börn, hefur það í för með sér að réttlætiskennd jafn margra er misboðið, þá er ástæða til að hlusta. Þegar UNICEF og Rauði krossinn biðja okkur að hlusta er ástæða til að hlusta, hlusta og velta því fyrir sér hvort við séum að framfylgja lögum sem eiga að byggjast á mannúð með þeim hætti sem við eigum að gera þannig að þau uppfylli skyldur barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem við höfum undirgengist.“