Húsnæði sem hýst hefur vistheimili að Víðinesi á Álfsnesi hefur verið auglýst til leigu. Heildarstærð húsa og millibygginga eru rúmir 2.000 fermetrar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. Um tíma bjó töluverður fjöldi heimilislauss fólks á vistheimilinu og fór misjöfnum sögum af því. Þetta fólk fékk allt ný húsnæðisúrræði áður en vistheimilið var lagt niður.
Eins og fram kom í umfjöllun DV á sínum tíma létu sumir heimilismenn í Víðinesi vel af vistinni en þá ríkti óvissa um framtíðarhúsnæði þeirra:
Húsnæðið samanstendur af þremur samtengdum húsum með 30 stórum herbergjum, ásamt þjónusturýmum og eldhúsi.
Eitt húsið er á tveimur hæðum en hin eru á einni hæð. Gert er ráð fyrir að leigutími verði ótímabundinn með 12 mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti.
Eignaskrifstofa Reykjavíkurborgar annast útleigu og býður til skoðunarferðar um eignina miðvikudaginn 23. september, kl. 15 – 16, en það er í næstu viku.
Leiguverð kemur ekki fram í tilkynningu frá borginni en óskað er eftir tilboðum: „Tilboðum um leiguverð ásamt upplýsingum um fyrirhugaða nýtingu hússins skal skila í lokuðu umslagi merkt „Víðines leiga“ í afgreiðslu þjónustuvers Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12‐14 fyrir kl. 13.00 miðvikudaginn 9. október 2020.“