Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, sendir ríkisstjórninni tóninn í pistli í Morgunblaðinu í dag. Er hann, og flokkur hans, ósáttur við viðbrögð ríkisstjórnarinnar við heimsfaraldrinum og telur aðgerðir þeirra einkennast af stefnuleysi.
„Mánuðum saman hafa ráðherrar hamrað á því að við séum ekki sloppin, veiran muni sennilega blossa upp aftur, við þurfum að gæta okkar, vera viðbúin annarri bylgju o.s.frv.“
Engu að síður hafi ríkisstjórnin farið þá leið að ráðast í kostnaðarsama auglýsingaherferð til að fá ferðamenn inn til landsins, til þess svo eins að herða aðgerðir gífurlega á landamærunum.
„Milljarðar hafa runnið úr ríkissjóði vegna faraldursins, m.a. í að auglýsa landið, plástra vinnumarkaðinn, greiða bætur, öskra í kassa, algerlega stefnulaust, algerlega áætlanalaust og algerlega án framtíðarsýnar.“
Í ljósi þess að ríkisstjórnin hafi sjálf viðurkennt eftir fyrri bylgju faraldursins að allar líkur væri á að önnur bylgjan kæmi þá sé það einstaklga ámælisvert, að mati Gunnars, að hafa ekki mótað sér skýra stefnu í COVID-málum. Gunnar beinir því fjölda spurninga til ríkisstjórnarinnar og vinnubragða þeirra.
„Hvers konar vinnubrögð eru það að segjast búast við að veiran blossi upp aftur en hafa svo engar áætlanir um viðbrögð?
Hvers konar vinnubrögð eru það að setja hundruð milljóna í að auglýsa landið en loka því svo á einni nóttu?
Hvað á það að þýða að eyðileggja orðspor landsins með fyrirvaralausum ákvörðunum?
Hefur ríkisstjórnin metið hvað það muni kosta okkur að missa trúverðugleika ferðasala erlendis?
Hvers vegna ættu fyrirtæki í ferðaþjónustu að reyna að selja ferðir til Íslands þegar óvissan er alger?“
Veltir Gunnar því fyrir sér hvernig íslenska samfélagið á að halda áfram í þessari óvissu þegar tímabundnar aðgerðir eru framlengdar á síðustu stundu og engar áætlanir liggi fyrir um framhaldið.
Miðflokkurinn hafi borið fram liðsinni sitt við þetta verkefni, sem og aðrir flokkar í stjórnarandstöðunni en því hafi verið hafnað. Sé það því lágmarkskrafa að ríkisstjórnin standi sína plikt.
„Við hljótum þá að krefjast þess að ríkisstjórnin leggi fram áætlanir um viðbrögð því veiran fer ekkert fyrr en búið er að bólusetja fyrir henni.“
Ríkisstjórnin þurfi að gera áætlanir til lengri tíma hvað varði landamæri, varðandi mögulega þriðju bylgju COVID, varðandi atvinnuleysi, stöðu heimilanna og fyrirtækja.
„Eða ætlar ríkisstjórnin að láta fjármálaöflunum eftir að ákveða hverjir lifa og deyja?“
Gunnar Bragi kallar eftir forystu fyrir þjóðina. Því ef ekkert verður af gert þá verði gengið að eignum Íslendinga.