fbpx
Miðvikudagur 26.febrúar 2025
Eyjan

Baldur ósáttur: Forkastanleg framkoma við íbúa

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 29. ágúst 2020 09:14

Mynd af Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baldur Borgþórsson, borgarfulltrúi Miðflokksins, mótmælir harðlega því sem hann telur vera forkastanlega framkomu borgarinnar við námsmenn sem búa í íbúakjarna í Grafarholti. Þar sem bílastæðum í hverfinu hafi fækkað um 70% séu námsmennirnir neyddir til að leggja ólöglega. Bílastæðasjóðir setji síðan háa sektarmiða á alla bílana. Meðfylgjandi myndir sýna þetta.
Mynd: Facebook
Í stuttu pistli sem Baldur vakti athygli DV á segir hann að þetta sé óforsvaranleg framkoma við námsmenn sem eigi betra skilið og hljóti að eiga að njóta sömu mannréttinda og aðrir:
„Svona gerir maður ekki!
Forkastanleg framkoma við íbúa borgarinnar:
Staðan í Grafarholti í dag.
Bílastæðum íbúa í íbúðakjarna námsmanna í hverfinu hefur verið fækkað um allt að 70%.
Hægur vandi hefði verið að útbúa annað úrræði fyrir íbúana handan götunnar.
Það var ekki gert.
Þess í stað eru íbúar þvingaðir í að leggja eins og meðfygjandi mynd sýnir enda engin önnur úrræði í boði.
Svo er Bílastæðasjóður sendur á staðinn og sektarmiðar upp á kr.10,000,- settur á alla bíla.
Slíkum ,,glaðning“ mega námsmenn ekki við.
Lausnir væru betur þegnar en eru ekki í boði.
Hér kveður við kunnulegan tón:
Engar lausnir, bara vandamál.
Það er eitt að ætla sér að þétta byggð en svona gerir maður ekki.
Námsmenn hljóta að njóta sömu mannréttinda og aðrir.
Að svipta þá úrræðum og sekta svo er hneisa.
Það eru tilmæli undirritaðs að Reykjavíkurborg afturkalli útgefnar sektir og útbúi úrræði fyrir íbúana án tafar.
Það er afar einfalt í framkvæmd.
Allt sem þarf er vilji…
Baldur Borgþórsson Varaborgarfulltrúi Miðflokksins“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Inga Sæland rassskellti hrútspungana í Hádegismóum – örvænting og örþrifaráð einkenna stjórnarandstöðuna

Orðið á götunni: Inga Sæland rassskellti hrútspungana í Hádegismóum – örvænting og örþrifaráð einkenna stjórnarandstöðuna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kóngurinn er sestur að í Hvíta húsinu

Kóngurinn er sestur að í Hvíta húsinu
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Inga tók illa í fyrirspurn Hildar – Bergþór með föðurleg ráð

Inga tók illa í fyrirspurn Hildar – Bergþór með föðurleg ráð
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Hrægammarnir í bankakerfinu – græðgi á kostnað almennings

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Hrægammarnir í bankakerfinu – græðgi á kostnað almennings
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Áslaug Arna: flokkurinn missti talsamband við fólk – gleymdi launþegum, íþróttum og atvinnulífinu

Orðið á götunni: Áslaug Arna: flokkurinn missti talsamband við fólk – gleymdi launþegum, íþróttum og atvinnulífinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Borgarstjórnarviðræður

Óttar Guðmundsson skrifar: Borgarstjórnarviðræður