Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Bandalag Háskólamanna (BHM) hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem skipan fjármálaráðherra í starfshóp sem meta á efnahagsáhrif sóttvarnaraðgerða er mótmælt harðlega.
„Við köllum eftir því að starfshópur fjármálaráðherra sem vinna mun reglulegar greiningar á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnarmálum verði breikkaður þannig að sjónarmið fleiri en atvinnurekenda fái að koma þar fram. Það er gamaldags viðhorf að efnahagsmál snúist fyrst og fremst um fyrirtæki en ekki heimili og almenning,“ segir í yfirlýsingunni.
Í tilkynningu fjármálaráðuneytisins sem send var út í dag um skipan starfshópsins er tekið fram að hann eigi að taka tillit til ólíkra samfélagshópa og geira hagkerfisins.
Sjá: Fyrrverandi seðlabankastjóri greinir efnahagsleg áhrif sóttvarna
„Þar hefur fulltrúi stórfyrirtækja, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, verið kallaður til en fulltrúar launafólks eru víðs fjarri. Þetta er til marks um rörsýn fjármálaráðherra í efnahagsmálum, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir íslenskt samfélag til framtíðar.
Við krefjumst þess að fjármálaráðherra boði fulltrúa launafólks að borðinu þegar í stað. Að öðrum kosti verða tillögur starfshópsins og vinna hans ómerk,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni frá ASÍ, BHM og BSRB.
Undir hana rita:
Starfshóp Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, skipa: