„Það var rangt af mér að ýja að því að hann ætti að fokka sér. Þrátt fyrir að ég sagði það ekki beint, þá er það líka rangt hjá mér að láta það líta þannig út. Þannig að í öllum túlkunum þessarar framsetningar, þá er það rangt. Ef einhver efast um hvað ég meina, algerlega án allrar kaldhæðni þá var þetta jafn rangt hjá mér og greinin hans var um afglæpavæðingarmálið,“ sagði Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, á Facebook-vegg sínum seint í gærkvöld en þetta varðar deilur við Kolbein Óttar Proppé, þingmann og varaþingflokksformann VG um frumvarp Pírata um afglæpavæðingu vörslu neysluskammta vímuefna.
Ágreiningurinn snýst um aflglæpavæðingu neysluskammta fíkniefna. Grein sem Kolbeinn birti um málið á Vísir.is í gær vakti mikla reiði meðal Pírata.
Kolbeinn hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að greiða atkvæði gegn frumvarpi Pírata um afglæpavæðingu neysluskammta. Frumvarpið var lagt fram á lokametrum vorþingsins en stjórnarliðar greiddu ýmist atkvæði gegn því eða sátu hjá. Þó er afglæpavæðing á meðal stefnumála ríkisstjórnarinnar samkvæmt stjórnarsáttmála. Í Vísis-greininni sagði Kolbeinn umræðuna einkennast af yfirborðslegum fyrirsagnalestri og þreyttum pólitískum klækjabrögðum Pírata. Kolbeinn lýsir því jafnframt yfir að hann vilji afglæpavæðingu:
„Ríkisstjórnin hefur unnið að stefnu sinni um afglæpavæðingu, þ.e. að horfa á fíkniefnasjúklinga sem veikt fólk en ekki glæpamenn. Það er í samræmi við stjórnarsáttmálann. Risastórt skref var stigið fyrr á þessu þingi þegar frumvarp var samþykkt um neyslurými. Heilbrigðisráðherra vann það í góðu samráði við fjölmörg sem að þessum málum koma, það var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda og fór svo fyrir þingið þar sem það fékk sína hefðbundnu umfjöllun. Þrátt fyrir allt þetta samráð heyrðust þær raddir að meira samráð þyrfti, vinna þyrfti málið betur. Það tel ég til marks um að þessi mál skipta okkur öll miklu máli.
Næsta skref í ferlinu er að vinna að afglæpavæðingu neysluskammta. Heilbrigðisráðherra mun leggja fram slíkt mál á næsta þingi. Málið verður unnið í samráði við lykilaðila í heilbrigðiskerfinu og fleiri sem að slíkum málum þurfa að koma; dómsmálaráðuneytið, lögreglan og ríkissaksóknari.“
Píratar hafa sakað ríkisstjórnina um að vilja gera þetta mál að sínu og ekki unna stjórnarandstöðuflokki því að hafa frumkvæðið.
Píratar töldu að sér vegið með grein Kolbeins og þau Halldóra og Björn Leví fóru hörðum orðum um hana á Facebook í gærkvöld. Kolbeinn sagði í grein sinni að umræðan einkenndist af fyrirsagnalestri og sagði síðan: „Og fyrir þau sem vilja bara fyrirsagnir, þá er hér fyrirsögn: Ég vil afglæpavæðingu neysluskammta.“
Þessu svaraði Björn: „hér er fyrirsögn fyrir þig: fokkaðu þér.“
Halldóra Mogensen var ekki sátt við þetta orðalag Björns Leví og var sérstaklega ósátt við að hún væri spyrt saman við þennan málflutning af í fréttum af umræðunum. Hún segist jafnframt fagna því ef frumvarp um afnám refsinga fyrir vörslu neysluskammta vímuefna verður að veruleika:
„Mér þykir leiðinlegt að hér séu statusar okkar Björns Levís teknir saman í eina frétt. Mér þykir það óviðeigandi að segja fólki að fokka sér og finnst mikilvægt að komi fram að ég er ekkert brjáluð út í meirihlutann, bara vonsvikin. En ég fagna því innilega ef satt reynist að frumvarp um afnám refsinga fyrir vörslu neysluskammta vímuefna er að vænta frá heilbrigðisráðherra og mun koma til með að styðja hana og meirihlutann í þeirri vinnu.“