fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Andrés nefnir þrjú mál sem þurfa sömu viðbrögð og COVID-19

Jón Þór Stefánsson
Þriðjudaginn 23. júní 2020 20:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrés Ingi, þingmaður utan þingflokka, ræddi um þau miklu viðbrögð sem að heimsfaraldur kórónaveiru fékk í ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum sem nú fara fram á Alþingi. Hann sagði að þrjú málefni þyrfti að fá sambærileg viðbrögð og og kórónaveiran, en þau eru: #FreeTheNipple-hreyfingin, loftlagsmál og Black Lives Matter-hreyfingin.

„Mér verður hugsað til þess þegar ég tók í fyrsta sinn þátt í eldhúsdegi. Þá var árið 2015 og ég nefndi sérstaklega mótmælin #FreeTheNipple, þar sem ungar konur og stúlkur vöktu almenning til vitundar um stafrænt kynferðisofbeldi. Ýmislegt hefur gerst síðan, en meinið sjálft er enn til staðar. Lög um stafrænt kynferðisofbeldi – sem var meginkrafa mótmælanna – eru loksins boðuð næsta haust.

Það tekur stjórnmálin sex ár að bregðast við þessu skýra og afmarkaða ákalli. Stúlkurnar sem mótmæltu eru orðnar fullorðnar og hafa fengið skýr skilaboð um að þeirra rödd, þeirra öryggi og þeirra mótmæli séu aldeilis ekki í forgangi.“

Um loftlagsmál sagði Andrés að þörf væri á miklu róttækari aðgerðum. Hann benti á að áætlun ríkisstjórnarinnar fengi svipaða upphæð og “Allir vinna”-verkefnið

„Þá má ég til með að nefna loftslagsmálin. “Aðgerðir strax!” hrópar ungt fólk um allan heim til að berjast fyrir framtíðinni, enda koma saman í loftslagsmálunum öll helstu baráttumál þess samfélags sem við viljum byggja. Loftslagsréttlæti er grundvöllurinn að heilbrigði, jöfnuði, jafnrétti og friði á komandi árum og áratugum.

Ríkisstjórnin lagði fram fyrstu aðgerðaáætlun sína í loftslagsmálum haustið 2018, en hún gat varla talist fullgerð. Í dag var loksins kynnt uppfærð og fullmótuð aðgerðaáætlun, ári síðar en til stóð. Þar er sem betur fer gengið lengra í að meta kostnað og árangur aðgerða en áður. Eitt kemur hins vegar á óvart í nýrri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum.

Samdráttur í þeirri losun gróðurhúsalofttegunda sem er á beinni ábyrgð stjórnvalda er áætlaður 35%. Þetta markmið í nýju áætluninni er það sama og í þeirri fyrri, þar sem boðaður var 30-40% samdráttur í losun. Metnaður ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum er sem sagt sá sami – nánast upp á prósentustig – og hann var fyrir tveimur árum.

Í millitíðinni hefur öll þróun verið á þá leið að þörf væri á miklu róttækari aðgerðum!

Fjármagnið í áætluninni verður 9 milljarðar á ári, en til samanburðar samþykkti þingið svipaða upphæð í endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna endurbóta á húsnæði. “Allir vinna” verkefnið fær semsagt álíka upphæð og loftslagspakki ríkisstjórnarinnar.“

Að lokum ræddi Andrés Black Lives Matter hreyfinguna. Hann ræddi nýtt frumvarp dómsmálaráðherra sem hann segir að geri það mikið skilvirkara að senda fólk úr landi. Hann sagði þetta fara þvert á vilja almennings.

„Loks vil ég nefna bylgju mótmæla sem farið hefur um heiminn gegn kynþáttahatri og fordómum. Upphafið er Black Lives Matter hreyfingin og lögregluofbeldi í Bandaríkjunum, en þetta ætti að vera okkur öllum tilefni til að horfast í augu við þau vandamál sem eru hér á landi. Það kallar á róttæka skoðun á flestum sviðum.

Dómsmálaráðherra lagði til dæmis nýlega fram frumvarp sem snýst um enn meiri skilvirkni í að senda hælisleitendur til landa sem eru orðin hættuleg fyrir hælisleitendur.

Lögreglan vígði nýlega landamærabíl sinn með því að gera rassíur á vinnustöðum og einblínir þar á aðgerðir gegn vinnandi fólki og að vísa því úr landi. Ekkert virðist hins vegar gert til að draga atvinnurekendur til ábyrgðar – enda virðist mansalsáætlun ríkisstjórnarinnar vera í algjöru frosti.

Í stað þess að fara af fullum þunga í að gera samfélagið öruggt fyrir þann fjölbreytta hóp fólks sem landið byggir velja stjórnvöld hörku fram yfir mannúð í samskiptum sínum við innflytjendur. Þrátt fyrir ítrekað ákall almennings um annað.

Á síðustu mánuðum höfum við séð hvernig samfélagið getur breyst í neyðarástandi. Á þeim umbrotatímum sem við upplifum eru kynbundið ofbeldi, rasismi og loftslagsmál ekki minna neyðarástand en heimsfaraldur kórónaveiru. Fólk á skilið að brugðist sé við þeim af sama krafti. Fyrir réttlátari framtíð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur