fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Eyjan

Feitustu bitlingarnir brátt úr sögunni

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 12. júní 2020 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Eftir að bankastjórarstöður hættu að vera pólitískar hefur tækifærum til „virðulegrar útgöngu“ af vettvangi stjórnmálanna fækkað. Þeim mun enn fækka á næstu árum samþykki Alþingi frumvarp Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra um sendiherraskipanir.“

Svo ritar Björn Jón Bragason í pistli sínum í helgarblaði DV þar sem hann fjallar um einn helsta vettvang pólitískra bitlinga í samtryggingakerfi stjórnmálanna hér á landi; sendiherrastöður.

Í pistlinum kemur fram að frumvarp utanríkisráðherra gæti verið þyrnir í augum þeirra stjórnmálamanna sem hafi séð fyrir sér þægilega innivinnu eftir harkið á þingi:

„Frumvarpið hefur mætt nokkurri andstöðu á Alþingi þó svo að hún fari ekki mjög hátt. Heimildir herma að ýmsir þingmenn telji að með frumvarpinu sé gert út um vonir þeirra sjálfra um sendiherrastöðu í framtíðinni. Í frumvarpinu er enn fremur gert að skyldu að embætti sendiherra verði auglýst og að umsækjendur skuli uppfylla lágmarks hæfisskilyrði. Þeir þurfi að hafa lokið háskólaprófi og hafa reynslu af alþjóða- og utanríkismálum,“

segir Björn Jón meðal annars.

Nánar er fjallað um málið í helgarblaði DV.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur