„Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) lýsir yfir miklum vonbrigðum með einarða og óbilgjarna afstöðu Icelandair í þeim árangurslausu samningaviðræðum sem staðið hafa yfir milli aðila síðustu vikur. Þrátt fyrir ríkan samningsvilja FFÍ og ítrekuð móttilboð hefur Icelandair haldið sig að mestu við upphaflegt tilboð sitt og sýnt lítinn vilja til samninga,“
segir í tilkynningu frá FFÍ í kjölfar þess að samningar náðust ekki í dag.
Þar segir einnig að Icelandair sé ekki tilbúið í raunhæfar viðræður, þar sem félagið beiti afarkostum. Neitar FFÍ að láta „beygja sig í duftið“ vegna hræðsluáróðurs og ítrekar að félagið sé ennþá tilbúið fyrir frekari viðræður:
„Icelandair lagði mánudaginn 18. maí enn á ný fram tilboð sem er keimlíkt því sem áður hefur verið hafnað með skýrri afstöðu félagsmanna FFÍ. Samninganefnd FFÍ lagði fram móttilboð í dag, 20. maí og gerir sér fulla grein fyrir alvarleika stöðunnar sem nú er uppi.
Á undanförnum vikum hefur samninganefnd FFÍ ítrekað lagt fram tilboð til að koma til móts við fyrirtækið af fullri einlægni og með eindreginn samningsvilja. Tilboðið sem var lagt fram í dag fól m.a. í sér aukið vinnuframlag, eftirgjöf á flug-, vakt- og hvíldartímaákvæðum sem gefa fyrirtækinu möguleika til verulegrar hagræðingar, aukins sveigjanleika og vaxtar. Fyrirtækið hefur hins vegar á engum tímapunkti verið tilbúið til viðræðna á raunhæfum grunni.
Niðurstaða við samningaborð í kjaradeilu næst ekki með afarkostum frá öðrum aðilanum, heldur í samtali á jafnræðisgrundvelli. FFÍ neitar að láta hræðsluáróður forsvarsmanna Icelandair beygja félagsmenn í duftið. FFÍ hefur ríkan stuðning norrænu- og evrópsku flutningamannasamtakanna og íslenska verkalýðshreyfingin stendur þétt við bakið á FFÍ enda varðar sú staða sem nú er uppi allt launafólk á Íslandi.
FFÍ ítrekar enn á ný samningsvilja sinn og óskar þess að slíkt hið sama hefði verið uppi á borðum hjá viðsemjendum, sem því miður fara fram með einhliða yfirlýsingar og minni samningsvilja en gefið er í skyn á opinberum vettvangi.“