fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

Benedikt gefur ríkisstjórninni sjö ráðleggingar á krepputímum

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 13. apríl 2020 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Á örlagatímum er mikilvægt að líta um öxl og læra af reynslunni. Meðalið má ekki verða hættulegra en sjúkdómurinn. Mörg dæmi eru um það að eftir hrunið hafi bankamenn fært eignarhald á fyrirtækjum til vildarvina. Því fór fjarri að allir sætu við sama borð. Nú kreppir aftur að og strax eru blikur á lofti um að einhverjir ætli að nýta sér stöðuna sér til framdráttar. Því er gott að stjórnvöld hafi nokkrar einfaldar reglur í huga,“

segir Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármálaráðherra og formaður Viðreisnar

Hann segir að í kjölfar hrunsins hafi margir talið að ný tegund stjórnmálamanna myndi stíga fram:

„Fólk sem einbeitti sér að lausnum á vanda samfélagsins, en ekki eigin pólitískum markmiðum og karpi um aukaatriði. Vandaðir stjórnarhættir yrðu settir í forgang. Raunin hefur orðið önnur. Lýðskrum hefur aldrei verið meira og kjósendur fagna loddurum með einfaldar lausnir eins og Trump, þó að einnig megi finna nærtækari dæmi. Sem betur fer báru íslenskir stjórnmálamenn gæfu til þess að greiða niður skuldir til þess að búa þjóðarbúið undir næstu kreppu, jafnvel þó að núverandi ríkisstjórn hafi eytt um efni fram.“

Hann leggur því til sjö reglur sem ríkisstjórnin þurfi að hafa í huga við næstu skref í kjölfar kórónuveirufaraldursins:

  1. Ekki reyna að gera of margt í einu Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tókst á við mörg stórverkefni samtímis og lauk engu þeirra. Það var ekki einu sinni samstaða innan stjórnarliðsins, hvað þá að reynt væri að ná til stjórnarandstöðunnar.
  2. Útskýrið vandann fyrir almenningi Ef menn ætla að fara í grundvallarbreytingar er nauðsynlegt að hafa sterkan talsmann. Almenningur vill gjarnan flykkja sér að baki leiðtoga sem skýrir hvert ber að stefna.
  3. Notið mál sem almenningur skilur Stjórnmálamenn með mikla reynslu segja frá því, að um leið og einhver nefnir hagvöxt, framleiðni eða raungengi sé eins og þoka myndist milli ræðumanns og áheyrenda.
  4. Endurtakið skref 2 og 3Stuðningur almennings er ekki föst stærð. Þess vegna þurfa menn að flytja fagnaðarerindið aftur og aftur. Góð vísa er aldrei of oft kveðin.
  5. Stillið væntingum í hóf Þessu ráði er erfitt að fylgja. Þolinmæði er fágæt dyggð.
  6. Fylgist með viðhorfi almennings, fordómum og misskilningi Stjórnmálamenn eiga ekki að elta almenningsálitið, en þeir þurfa samt að fylgjast með því. Það er ekki létt verk að ætla að breyta lífsviðhorfi fólks, en það getur þó gerst þegar meiriháttar viðburðir eins og hrunið verða. Þeir stjórnmálamenn sem skilja það verða ofan á.
  7. Setjið sanngirni í forgang Ef það er eitthvað sem almenningur þolir ekki þá er það að mismunað sé milli Jóns og séra Jóns. Leiðin til þess að komast hjá þessu er að ástunda vandaða stjórnsýslu, gagnsæi og jafnræði.

„Ekkert er stjórnmálamanni jafnmikils virði og traust. Menn eru lengi að ávinna sér það og fljótir að tapa því aftur,“

segir Benedikt að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur