fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

Ný rannsókn: Þú trúir því aldrei hvað Íslendingar sóa miklum mat árlega – Sláandi tölur

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 2. apríl 2020 10:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á síðastliðnu ári framkvæmdi Umhverfisstofnun ítarlega rannsókn á umfangi matarsóunar á Íslandi, þar sem 90 heimili og 80 fyrirtæki tóku þátt. Samkvæmt niðurstöðu rannsóknarinnar  má áætla að hver einstaklingur sói að meðaltali um 90 kg af mat árlega. Matarsóun íslenskra heimila er samkvæmt þessu sambærileg því sem þekkist í öðrum Evrópulöndum, samkvæmt tilkynningu.

Matarsóun er umfangsmikið vandamál sem snýr ekki aðeins að sóun matvæla heldur einnig sóun á fjármunum og sóun á auðlindum jarðar. Það sýnir umfang vandans að Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur áætlað að um þriðjungi framleiddra matvæla sé sóað.

Yfir 7000 tonn á ári

Íslensk heimili hentu að meðaltali um 20 kg af nýtanlegum mat á ári, 25 kg af ónýtanlegum matarafgöngum, 40 lítrum af drykkjum og 5 kg af matarolíu og fitu á hvern fjölskyldumeðlim samkvæmt könnuninni.

Með öðrum orðum er áætlað að íslensk heimili hendi samtals 7.152 tonnum af nýtanlegum mat á ári hverju, um 9.130 tonnum af ónýtanlegum matarafgöngum, 14.670 tonnum af drykkjum og 1.840 tonnum af matarolíu og fitu. Sambærileg rannsókn var framkvæmd af Umhverfisstofnun árið 2016 og fannst ekki tölfræðilega marktækur munur á sóun milli tímabilanna tveggja.

Niðurstöður fyrirtækjarannsóknarinnar benda til að ríflega 22 kg af nýtanlegum mat, 3,6 kg af ónýtanlegum mat, 14,6 lítrum af drykkjum og 1,6 kg af olíu og fitu sé sóað á hvern íbúa árlega. Dræm þátttaka framleiðslufyrirtækja í rannsókninni gerir það þó að verkum að niðurstöðurnar endurspegla bara neysluhlekk matvælakeðjunnar, þ.e.a.s. heild- og smásölu, veitingasölu og spítala og hjúkrunarheimili.

Vesturlönd veita matarsóun sífellt meiri athygli, ekki síst vegna umtalsverðrar losunar gróðurhúsalofttegunda. Enn sem komið er liggja ekki fyrir staðlaðar aðferðir við rannsóknir á matarsóun, en eitt framlag rannsóknarskýrslu Umhverfisstofnunar var að koma með tillögur til Hagstofu Evrópusambandsins að stöðluðum aðferðum við rannsóknir á matarsóun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur