fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

Starfsáætlun Alþingis tekin úr sambandi til 20. apríl hið minnsta

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 19. mars 2020 14:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forsætisnefnd hefur samþykkt að taka úr sambandi starfsáætlun Alþingis fyrir 150. löggjafarþing frá og með deginum í dag að telja og til og með 20. apríl fyrst um sinn. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Á þeim tíma verða eingöngu boðaðir þingfundir til að takast á við brýn mál sem tengjast COVID-19 heimsfaraldrinum. Brottfall starfsáætlunar þýðir einnig að komið getur til þingfunda á þeim tíma sem áður var reiknað með fundahléi um páska, en þá eingöngu af sömu ástæðum, þ.e. ef brýnt verður að grípa til ráðstafana vegna ástandsins og atbeina Alþingis þarf til.

Enn fremur samþykkir forsætisnefnd að hefðbundin fundaáætlun fastanefnda sé tekin úr sambandi og eingöngu verði boðað til nefndafunda í þeim nefndum sem þurfa að taka til umfjöllunar þingmál sem tengjast viðbrögðum við COVID-19 faraldrinum. Óski aðrar fastanefndir eftir sem áður eftir því að funda þarf að sækja um það sérstaklega til forstöðumanns nefndasviðs og fá fyrir því samþykki forseta.

Forsætisnefnd færir viðbragðsteymi Alþingis og starfsfólki Alþingis öllu þakkir fyrir ómetanleg störf við erfiðar aðstæður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna

Bandarísk stjórnmál: Biden vill koma böndum á Hæstarétt Bandaríkjanna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“

Hildur hnyklar brýnnar í áframhaldandi ritdeilu – „Ég trúi varla að ég þurfi að rita enn eina grein­ina“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar

Þingflokksformaðurinn leiðréttir rangfærslu um Samfylkinguna og biðst afsökunar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði

Þorsteinn Pálsson: Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skattleggja gamla fólkið fremur en að tryggja jafnræði allra á fjármálamarkaði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur

Svarthöfði skrifar: Stígum skrefið til fulls og afnemum samkeppnina alls staðar – fyrir neytendur
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Fjölmargar þjóðir með meiri – miklu meiri – kaupmátt en við – það er von að Bjarni Ben sé ánægður og stoltur