„Umræðan snýst öll um kórónuveiruna. Og er ekki að undra. En það er líka fundið að því að almenningur láti til sín taka í umræðunni og þess vegna skekki hana í stað þess að lúta „sérfræðingunum“ álútur og þegjandi. Það er nú það. Margt gengur vissulega í skrítnar áttir þegar við „almúginn“ léttum á okkur og spyrjum um það sem þyngst liggur á hjarta,“
segir í leiðara Morgunblaðsins er ber yfirskriftina Almenningur tekur ekki vondri pest þegjandi. Höfundur er Davíð Oddsson, ritstjóri blaðsins.
Davíð, sem löngum hefur hæðst að ríkisútvarpinu með því að setja skammstöfunina RÚV ævinlega í gæsalappir, gerir nú slíkt hið sama þegar kemur að sóttvarnarlæknum, smitsjúkdómalæknum og öðrum sérfræðingum sem staðið hafa vaktina síðan veiran lét fyrst kræla á sér.
Telur Davíð að viðbrögð þeirra hafi að mestu verið röng og hafi í raun gert illt verra sem skýri óróa almennings. Telur hann Evrópusambandið einnig eiga sinn þátt í sökinni:
„En bæði hér og erlendis verður almenningur órólegur þegar hann hugsar til þess að mat og ráð sérfræðinganna og aðgerðir, sem vissulega eru gerðar í góðri trú, skila ekki þeirri niðurstöðu sem fólkinu var talin trú um. Dæmin eru mörg. Sérfræðingar og „yfirvöld“ voru fararstjórar á Ítalíu og öll þeirra ráð gerðu ekki mikið gagn og margir þarlendra telja reyndar orðið óyggjandi að þau hafi gert illt verra. Engar skýringar hafa verið gefnar á því hvers vegna allt fór úrskeiðis þar syðra. Aðalskýringin hefur verið sú að lengi hafi verið beðið blessunar frá Brussel og hún komið seint og illa og í skötulíki.“
Davíð hefur litla trú á sérfræðingum og vitnar því heldur í ónefndan „fróðleiksmann“ sem taldi sjónarmið íslensks sóttvarnarlæknis undarleg og rengdi yfirlýsingu Angelu Merkel, kanslara Þýskalands um að 60-70% Þjóðverja gætu smitast af veirunni, en „fróðleiksmaðurinn“ taldi slíkar tölu úr lausu lofti gripnar og sagði fullyrðingu íslenska sóttvarnarlæknisins, um að pestin gengi niður á nokkrum mánuðum, vera þvert á álit veirufræðinga í Þýskalandi, sem stjórna fremstu rannsóknarstofunum í Þýskalandi.
Samkvæmt þessu virðast þýskir veirufræðingar (sérfræðingar) því ofar í virðingarstiganum hjá Davíð en íslenskir sóttvarnarlæknar. (Sérfræðingur).
Af gefnu tilefni er verðugt að minnast orða Magnúsar Karls Magnússonar, prófessor í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands, sem varaði við besservissurum sem sprottið hafa upp í kjölfar Covid-19 sjúkdómsins:
„Ég vil því biðja þá sem alltaf vita hvert er rétta svarið eða eru alltaf tilbúnir til að krítísera allar ákvarðanir að staldra við eitt augnablik. Dunning-Kruger áhrifin eiga svo sannarlega við núna, en Dunning-Krueger er hugsanavillan sem á við þegar þeir sem minnst vita, telja sig best vita.“
„Fjölmiðlar landsins hafa flestir gert verulegt átak til að koma fróðleik og upplýsingum á framfæri. Það er reyndar vandmeðfarið, því að þeir sem koma fróðleik og upplýsingum á framfæri vilja ekki verða til þess í ógáti ýta undir óróleika og ótta. Þeir þættir eru auðvitað til staðar og ef þungi þess eykst getur skaðinn sem af því hlýst bæst við það tjón sem veirupestin sjálf veldur,“
segir Davíð og telur gagnrýni sína á þá sérfræðinga sem eru í fararbroddi í baráttunni gegn Covid-19 væntanlega undanskylda slíkum skaða.
Leiðari Davíðs hefur þegar fengið gagnrýni frá hægrinu, en Björgin Guðmundsson, fyrrverandi formaður SUS, ritstjóri Viðskiptablaðsins, fréttastjóri hjá Morgunblaðinu og nú einn eiganda og ráðgjafi hjá KOM ráðgjafafyrirtækinu, virðist hæðast að leiðara Davíðs á Twitter:
Í leiðara @mblfrettir í dag er varað við oftrú á sérfræðingum og vitnað í nafnlausan „fróðleiksmann“ sem lofar Þýskaland og býst við tveggja ára COVID faraldri. Siðan segir að fjölmiðlar þurfa að miðla uppl. en „vilja ekki verða til þess í ógáti að ýta undir óróleika og ótta“.
— Bjorgvin Gudmundsson (@BjorgvinG) March 13, 2020