fbpx
Þriðjudagur 23.júlí 2024
Eyjan

Sjálfstæðisflokkurinn skipar eigið loftslagsráð

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 14. febrúar 2020 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur sett á stofn Loftslagsráð Sjálfstæðisflokksins að tillögu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, Jóns Gunnarssonar og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Auknar áherslur eru á loftslagsmál hérlendis og á heimsvísu og þau snerta flesta málaflokka. Því var talið rétt að skipa ráð sem starfaði þvert á málefnanefndir flokksins, en þær eru átta að tölu og endurspegla málefnastarf Alþingis. Loftslagsráð er skipað breiðum hópi fólks úr atvinnulífi, sveitarstjórnum, SUS og úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Loftslagsráði er ætlað að fjalla um málaflokkinn þvert á málefnanefndir og að beina eftir atvikum tillögum til málefnanefnda, miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins og til landsfundar. Skipunartími ráðsins er eitt ár.“

Eftirtaldir aðilar voru skipaðir í ráðið: Áslaug Hulda Jónsdóttir, Davíð Þorláksson, Guðfinnur Sigurvinsson, Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir, Haraldur Benediktsson, Hildur Björnsdóttir, Hugrún Elvarsdóttir, Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, Kristján Þór Magnússon og Unnur Brá Konráðsdóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu