Meðal þess sem velferðarnefndin hyggst gera er að standa fyrir viðburði í lok ársins 2020 þar sem ýmsir aðilar, meðal annars ráðgjafarstöðvar fyrir ungmenni, miðla þekkingu sinni og reynslu. Almennt vill nefndin:
- Vinna að því að draga úr sjálfsvígum í hverju og einu norrænu landanna um 25 prósent fram til ársins 2025
- Vinna að þeirri framtíðarsýn fyrir 2025 að sjálfsvíg á lestarteinum þekkist ekki
- Vinna að þeirri sameiginlegu framtíðarsýn að sjálfsvíg þekkist ekki meðal neinna áhættuhópa
„Hornsteinn í norrænu samstarfi er að norrænu löndin læri af reynslu hvers annars og það er líka höfuðatriði í skýrslunni Þekking sem nýtist sem Árni Páll Árnason, fyrrum félagsmálaráðherra Íslands, vann fyrir Norrænu ráðherranefndina. Velferðarnefndin styðst meðal annars við þessa sömu skýrslu í forgangsröðun aðgerða sinna á sviðum heilbrigðis- og félagsmála,“
segir í tilkynningunni.
Margar orsakir – margir markhópar
Á hverjum degi taka 10 einstaklingar á Norðurlöndum eigið líf. Sem dæmi um stærð vandans má nefna að í Noregi falla sex sinnum fleiri fyrir eigin hendi heldur en látast í umferðarslysum. Á bak við hvert sjálfsvíg er einstök saga en yfir heildina litið eru eftirfarandi hópar í meiri hættu en aðrir: ungt fólk sem glímir við vanlíðan, einstaklingar með geðrænan vanda, aldraðir sem glíma við einmanaleika, þeir sem hafa orðið fyrir áföllum og fíkniefnaneytendur. Það að orsakirnar séu svo margbreytilegar veldur því að forvarnir gegn sjálfsvígum eru flóknar. Velferðarnefndin ætlar því að horfa til allra hópa fólks sem glímir við heilsufarslegan og félagslegan vanda.
Félagslega sjálfbær Norðurlönd
Forvarnastarf gegn sjálfsvígum er skref í áttina að því að uppfylla framtíðarsýn fyrir árið 2030 um félagslega sjálfbær Norðurlönd: Saman ætlum við að stuðla að samfelldu svæði án aðgreiningar þar sem jafnrétti ríkir og sem byggist á sameiginlegum gildum og enn öflugri menningarsamskiptum og velferð.