fbpx
Miðvikudagur 09.apríl 2025
Eyjan

Rannveig fundaði með starfsfólki í morgun – Rio Tinto íhugar að hætta rekstri álversins

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 12. febrúar 2020 09:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan átta hófst starfsmannafundur hjá ISAL, álverinu í Straumsvík sem Rannveig Rist forstjóri boðaði til. Þar á að fara yfir stöðu mála hjá fyrirtækinu vegna rekstrarvanda fyrirtækisins, en hann hefur verið viðvarandi í mörg ár sökum minnkandi heimsmarkaðsverðs á áli sem og hækkandi orkukostnaðar á Íslandi. Fréttablaðið greinir frá.

Eigendur ISAL, Rio Tinto, skoða nú alla möguleika til að gera álverið arðbært og samkeppnishæft og meðal þeirra er að loka verksmiðjunni alfarið, eða minnka framleiðsluna enn frekar, en hún var nýlega minnkuð niður í 85%. Frá þessu er greint í tilkynningu frá ISAL.

Endurskoðunarferlið á rekstri fyrirtækisins á að liggja fyrir á fyrri helmingi þessa árs, en hjá ISAL starfa um 500 manns.

Viðskiptamogginn greinir frá því að forsvarsmenn Rio Tinto, eiganda álverksmiðjunnar í Straumsvík, hafi átt fund með Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra með endurskoðun á raforkusamningi í huga, sem gerður var árið 2010. Er hann talinn þrengja svo að starfseminni að fyrirtækið sé komið á ystu nöf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Sægreifar panta skipulegar árásir úr öllum áttum á fyrirhugaða hækkun veiðileyfagjalda

Orðið á götunni: Sægreifar panta skipulegar árásir úr öllum áttum á fyrirhugaða hækkun veiðileyfagjalda
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Vill láta kjósa um ESB-viðræður strax á þessu ári – Bandaríkin hafi snúið heimsmyndinni á hvolf

Vill láta kjósa um ESB-viðræður strax á þessu ári – Bandaríkin hafi snúið heimsmyndinni á hvolf
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ber mál Le Pen saman við mál Flokks fólksins

Ber mál Le Pen saman við mál Flokks fólksins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Logi Einarsson: Gerum eins og Apple gerir – samþættum tækniþróun og hönnun

Logi Einarsson: Gerum eins og Apple gerir – samþættum tækniþróun og hönnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trump fagnaði og sagði að áætlun hans væri að ganga upp – Setja Kínverjar honum stólinn fyrir dyrnar?

Trump fagnaði og sagði að áætlun hans væri að ganga upp – Setja Kínverjar honum stólinn fyrir dyrnar?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Þú kaupir af Guðbjörgu í hverri viku – umframhagnaður sægreifa fer í að kaupa upp atvinnulífið

Orðið á götunni: Þú kaupir af Guðbjörgu í hverri viku – umframhagnaður sægreifa fer í að kaupa upp atvinnulífið