„Ég hef formlega óskað eftir því í borgarráði að Innri endurskoðandi Reykjavíkur taki þetta mál til rannsóknar. Það er megn fýla af þessu frá upphafi til enda. Þetta sem birtist okkur núna er einungis lokapunkturinn,“
segir Vigdís Hauksdóttir um tap Reykjavíkurborgar upp á 43.5 milljónir vegna riftunar á samningi við Leiguafl um kaup á íbúðum við Grensásveg. Ekkert varð af fyrirhuguðum viðskiptum vegna tafa við framkvæmdir, en niðurstaðan er sú að Leiguafl fékk rúmar 43 milljónir frá Reykjavíkurborg þó svo engin viðskipti hefðu farið fram.
Fréttablaðið greinir frá því í dag að borgin hafi gefið eftir upphæðina í kjölfar samkomulags sem samþykkt var að tillögu Dags B. Eggertssonar borgarstjóra í borgarráði í desember, en trúnaður hafði ríkt um málið þar til honum var aflétt á fundi borgarráðs í gær.
Reykjavíkurborg rifti samningnum við Leiguafl í desember 2018 vegna 24 íbúða við Grensásveg 12. Upphæð samningsins var 785 milljónir, en nota átti íbúðirnar undir félagslegt húsnæði borgarinnar og var unnið að því að breyta atvinnuhúsnæðinu í íbúðir.
Í mati EFLU verkfræðistofu kom fram að íbúðirnar yrðu ekki tilbúnar fyrr en ári á eftir áætlun, eftir að Vinnueftirlitið lét stöðva allar framkvæmdir þar sem aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi starfsmanna var ekki í samræmi við lög og reglur. Einnig hafði láðst að tilkynna Vinnueftirlitinu um verkið.
Fjallað var um aðbúnað verkamanna á staðnum í fréttaskýringaþættinum Kveik árið 2018 þar sem fram kom að ástandið gerðist ekki öllu mikið verra.
Var því tekin ákvörðun hjá Reykjavíkurborg um að rifta samningum við Leiguafl, sem höfðaði mál og heimtaði 150 milljónir króna frá borginni.
Reykjavíkurborg vildi hins vegar að Leiguafl endurgreiddi kaupsamningsgreiðslu að upphæð 78.5 milljónir. Að lokum fór svo að samkvæmt samkomulagi við borgina endurgreiddi Leiguafl aðeins 35 milljónir króna af kröfu Reykjavíkurborgar og þar með fékk Leiguafl heilar 43 milljónir í kassann úr borgarsjóði, þrátt fyrir að engin viðskipti hefðu farið fram, en ætla má að Leiguafl hafi lagt út í nokkurn kostnað við breytingarnar á íbúðunum, en það var verktakafyrirtækið Hraunbrekka ehf. sem bar ábyrgð á verkinu.
Aðrir borgarfulltrúar hafa einnig sett spurningamerki við samkomulagið, en Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna sagði þetta óábyrga meðferð opinberra fjármuna:
„Þarna er verið að kaupa ekki neitt fyrir 43 milljónir.“