Eyjan greindi í gær frá því að Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, taldi ástæðu til að spyrja Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra að því hvort hún hefði vitað af Samherjamálinu og meintar mútugreiðslur þess í Namibíu, áður en greint var frá því í fjölmiðlum.
Sjá nánar: Vissi Katrín af Samherjamálinu áður en það komst í fréttir? – Fátt um svör
Ástæðan var sú að Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, hefði vitað um Samherjamálið áður en Kveikur greindi frá því, vegna tengsla norsks banka við Samherja og áhrif málsins á hagkerfi Noregs. Hún nefndi einnig að Katrín hefði fundað með norska sendiherranum skömmu fyrir birtingu gagnanna og að þeim Katrínu og Ernu væri vel til vina.
„Hefur einhver spurt forsætisráðherra út í það hvenær hún vissi af þessu stóra máli sem nú liggur fyrir að hefur skaðað hagsmuni Íslands? Hvað með aðra ráðherra? Hvað og hverjir vissu hvað í vændum var?“
spurði Helga Vala.
Eyjan sendi fyrirspurn á aðstoðarmann Katrínar fyrir helgi og fékk þau svör í gærkvöldi að Katrín hefði ekkert vitað um málið fyrirfram:
„Svarið við spurningunni er nei“