fbpx
Þriðjudagur 01.apríl 2025
Eyjan

Segir nýjar tölur sýna að veiðigjöld séu of há og eigi ekki rétt á sér

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 3. janúar 2020 12:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi birta á heimasíðu sinni samanburð á þróun eiginfjár fyrirtækja í sjávarútvegi annarsvegar og annarra fyrirtækja hinsvegar.

Niðurstaðan er sú að frá árinu 2002 hafi eigið fé í sjávarútvegi næstum þrefaldast á tímabilinu, úr 128 milljörðum króna í 341 milljarð árið 2018.

Hinsvegar hefur eigið fé annarra fyrirtækja á landinu sexfaldast á sama tíma, farið úr 502 milljörðum í tæplega 3000 milljarða.

Minni aukning í sjávarútvegi

Um þetta segir á vef SFS:

„Sumir kunna að benda á að fyrirtækjum í viðskiptahagkerfinu hafi fjölgað á tímabilinu, en fækkað í sjávarútvegi og því sé eðlilegt að eigið fé hafi aukist meira í viðskiptahagkerfinu. Slík ábending er sannanlega réttmæt. Ef hins vegar er leiðrétt fyrir breytingum á fjölda fyrirtækja, þá þrefaldaðist eigið fé á hvert fyrirtæki í sjávarútvegi á tímabilinu 2002-2018, en það hins vegar fjórfaldaðist í viðskiptahagkerfinu á sama tíma. Meiri aukning hefur því verið á eigin fé í viðskiptahagkerfinu á nefndu tímabili heldur en í sjávarútvegi.“

Forsenda lækkunar, eða afnáms veiðigjalda

Staksteinar Morgunblaðsins skrifa um þennan samanburð í dag og telja hann forsendu fyrir lækkun veiðigjalda, eða jafnvel afnám þeirra:

„Þó að deila megi um þennan samanburð eins og annan og um það hvort að eigið fé sé rétti mælikvarðinn er þessi samanburður vissulega áhugaverður, ekki síst í ljósi söngsins sem heyrist oft um að sjávarútvegurinn eigi ekki aðeins að búa við skattlagningu umfram aðrar greinar, svokölluð veiðigjöld, heldur einnig að þessir skattar þurfi að hækka.

Sú ályktun sem draga má af samanburði á þróun eigin fjár í sjávarútvegi og í öðrum greinum er alls ekki að ástæða sé til að hækka veiðigjöld. Þvert á móti styður þessi samanburður þá skoðun að veiðigjöldin eigi annaðhvort alls ekki rétt á sér eða séu of há.

Þegar við bætist að sjávarútvegur erlendis, sem keppir við íslenskan sjávarútveg, er ríkisstyrktur sést enn betur hve óeðlileg þessi sérstaka skattlagning er og hversu fjarstæðukennd krafan er um að auka hana enn frekar.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Þjóðarátak í ofbeldi

Steinunn Ólína skrifar: Þjóðarátak í ofbeldi
Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Við höfum ekki áhuga á útlendingamálum eða að leysa vandamálin á Íslandi“

„Við höfum ekki áhuga á útlendingamálum eða að leysa vandamálin á Íslandi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Skilningslaus ríkisstjórn – hver á núna að halda uppi húsnæðisverði á Íslandi?

Svarthöfði skrifar: Skilningslaus ríkisstjórn – hver á núna að halda uppi húsnæðisverði á Íslandi?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Undarlegt að fólk gagnrýni þá skoðun sem einhvers konar „menntasnobb““

„Undarlegt að fólk gagnrýni þá skoðun sem einhvers konar „menntasnobb““
Eyjan
Fyrir 1 viku

Heiða Björg borgarstjóri: Sjálfstæðismenn seldu hlutinn í Landsvirkjun – borgarbúar njóta ekki arðgreiðsla þaðan

Heiða Björg borgarstjóri: Sjálfstæðismenn seldu hlutinn í Landsvirkjun – borgarbúar njóta ekki arðgreiðsla þaðan
Eyjan
Fyrir 1 viku

Heiða Björg Hilmisdóttir: Kannski er mér kennt um að Sjálfstæðisflokkurinn komst ekki til valda

Heiða Björg Hilmisdóttir: Kannski er mér kennt um að Sjálfstæðisflokkurinn komst ekki til valda