Alls 4.252 einstaklingar fengu bréf frá eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar á síðasta ári vegna grunsemda um að viðkomandi hefði haft rangt við og fengið bótagreiðslur vegna atvinnuleysis á óeðlilegan hátt, samkvæmt ársskýrslu Vinnumálastofnunar fyrir 2018 og Morgunblaðið greinir frá. Alls 2.804 slík bréf voru send út árið 2017.
Af útsendum bréfum tókst að ljúka 15% mála, eða 617 talsins, en árið 2017 var 511 málum lokið með viðurlagaákvörðun.
Eftirlitsdeildin samkeyrir upplýsingar við gagnabanka menntastofnana, Ríkisskattstjóra, Samgöngustofu og Fangelsismálastofnunnar til að ganga úr skugga um að upplýsingar frá þeim sem sækja um bætur séu réttar. Þá er einnig tekið við ábendingum frá almenningi og einnig fylgst með þeim sem skrá ótilkynntar fjármagnstekjur.
Skuldamyndun vegna málanna nam rúmlega 152 milljóna króna eða að meðaltali 247.125 kr. á hvern einstakling sem sætti viðurlögum.
2.854 bréf voru send vegna samkeyrslu við staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra. Þar af lauk 355 málum með viðurlagaákvörðun.
93 bréf voru send til námsmanna. Tveimur málum lauk með viðurlagaákvörðun en 36 einstaklingum var synjað.
664 bréf voru send vegna staðfestinga/innskráninga sökum dvalar erlendis. Þá var 161 máli lokið með viðurlagaákvörðun, þar sem atvinnuleitendur höfðu verið erlendis, án þess að tilkynna ferð sína til stofnunarinnar.
557 bréf voru send vegna samkeyrslu við staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra vegna fjármagnstekna. Þar af lauk 47 málum með synjun sökum þess að einstaklingar skiluðu ekki umbeðnum gögnum.
Alls bárust 11.954 umsóknir um atvinnuleysisbætur í fyrra. Flestar umsóknir komu frá höfuðborgarsvæðinu eða 7.555. Á Suðurnesjum sóttu 1.240 einstaklingar um atvinnuleysisbætur sem er mesti fjöldinn af þjónustuskrifstofum á landsbyggðinni. Flestar umsóknir um atvinnuleysisbætur bárust í janúar, október og nóvember.
Í fyrra var alls 854 einstaklingum sagt upp störfum, og voru 922 lengur en 12 mánuði á bótum, eða 20% allra á skrá. Þá voru 1.964 einstaklingar lengur en sex mánuði á atvinnuleysisskrá, eða 42% allra á skrá.
Helstu verkþættir eftirlitsdeildar eru: