Allt að 80 manns gætu misst vinnuna hjá Arion banka á næstu dögum vegna umtalsverðra skipulagsbreytinga. Vefur Mannlífs greinir frá.
Er þetta sagður liður í yfirlýstri stefnu Benedikts Gíslasonar, nýráðins bankastjóra, sem er sagður hafa rætt það innan bankans að í forgangi sé að auka arðsemi hluthafa, en ekki sé stefnt að því að hann verði stærstur viðskiptabankanna þriggja. Er vitnað í viðtal við Benedikt í Fréttablaðinu þessu til staðfestingar, hvar hann sagði:
„Á hverjum degi höfum við ekki verið að búa til verðmæti fyrir hluthafa heldur að rýra þau. Þessu þurfum við að breyta og laga.”
Samkvæmt frétt Mannlífs á að tilkynna starfsmönnum bankans um hinar umfangsmiklu skipulagsbreytingar í dag, en um 800 manns starfa hjá bankanum.
Eyjan náði ekki í upplýsingafulltrúa Arion banka til að fá fréttina staðfesta.
UPPFÆRT
Upplýsingafulltrúi Arion banka segir við Vísi að ekki verði tilkynnt um uppsagnir í dag, en neitar að tjá sig um mögulegar uppsagnir á næstunni. Hinsvegar stæði nú yfir stefnumótunarvinna, sem ekki sæi fyrir endann á.
Eyjan greindi frá því um miðjan mánuðinn að Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefði óskað eftir því að láta af störfum. Áður var greint frá því að Jónína S. Lárusdóttir, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Arion banka, myndi láta af störfum bráðlega, en ekki kom fram hvers vegna hún væri að láta af störfum. Var Birna Hlín Káradóttir, yfirlögfræðingur Fossa markaða, sögð taka við starfi Jónínu.
Samkvæmt heimildum Eyjunnar voru þær Rakel og Jónína fórnarlömb „klassískra hreinsana“ nýrra stjórnenda bankans, sem vilji fá „sitt fólk“ inn í æðstu stöðurnar. Benedikt Gíslason var ráðinn bankastjóri Arion banka í júní, en hann tók við af Höskuldi H. Ólafssyni, sem tók skellinn vegna afleitrar afkomu bankans í fyrra, sem rekja mátti að hluta til, til falls WOW og annarra stórra gjaldþrota fyrirtækja sem fjármögnuð voru af bankanum, eins og Primera Air og United Silicon.
Heimildir Eyjunnar hermdu að fleiri myndu láta af störfum hjá Arion banka á næstunni og að ráðið verði inn nýtt fólk sem sé stjórnendum bankans að skapi og ekki sé loku fyrir það skotið að einhverjir verði fengnir inn frá Kviku banka, sem sagður hefur verið í sameiningarferli við Arion banka, þar sem stutt sé á milli þeirra hvað varðar hluthafahópinn, en margir þeir sömu eiga í báðum bönkum.
Miklar breytingar hafa átt sér stað innan Arion banka síðustu misserin. Á skömmum tíma er búið að skipta um framkvæmdastjóra sjóðstýringafyrirtækis bankans, stjórnarformanns hans og bankastjóra og nú bætast við tveir framkvæmdastjórar í sömu vikunni.