fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025
Eyjan

Brynjar skilgreinir Sjálfstæðisflokkinn: „Eltir tískubylgjur og er uppfullur af rétthugsun“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 23. september 2019 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Er hann ekki bara venjulegur flokkur sem eltir tískubylgjur og er uppfullur af rétthugsun eins og allir aðrir flokkar og heldur að það sé að vera nútímalegur?“

Svo skrifar Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er hann brást við spurningu sem sett var á vegginn hans á Facebook, þar sem óskað er eftir skilgreiningu á Sjálfstæðisflokknum, hvort hann sé vinstri,-miðju,- eða hægriflokkur.

Brynjar er einn þeirra sem orðaðir voru við embætti dómsmálaráðherra, en það féll í hlut Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur. Eru þeir Brynjar og Páll Magnússon, sem einnig var orðaður við embættið, sagðir ósáttir við þann ráðhag, svo ekki sé dýpra tekið í árinni.

Sitt sýnist hverjum um skilgreininguna en sammælast flestir í athugasemdakerfinu um að flokkurinn sé á rangri leið og er hann til dæmis uppnefndur krataflokkur og er þriðji orkupakkinn og yfirvofandi vegtollar nefndir sem dæmi um hversu langt flokkurinn hefur farið af sporinu, en hann fékk aðeins rúmlega 18 prósenta fylgi í könnun MMR í síðustu mælingu, sem er minnsta fylgi frá upphafi mælinga.

Sjálfur reynir Brynjar að bera í bætifláka og segir:

„Það er nú samt þannig (…) að Sjálfstæðisflokkurinn er eini alvöru stjórnmálaflokkurinn í landinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Hrægammarnir í bankakerfinu – græðgi á kostnað almennings

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Hrægammarnir í bankakerfinu – græðgi á kostnað almennings
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Hönnuð atburðarás og einkennileg framkoma Gylfa

Orðið á götunni: Hönnuð atburðarás og einkennileg framkoma Gylfa
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ragna hættir hjá Alþingi í sumar – Ráðin forstjóri Landsnets

Ragna hættir hjá Alþingi í sumar – Ráðin forstjóri Landsnets
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Hvernig verður umhorfs í Sjálfstæðisflokknum eftir landsfund? Ófriðarbál eða friður?

Orðið á götunni: Hvernig verður umhorfs í Sjálfstæðisflokknum eftir landsfund? Ófriðarbál eða friður?