fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024
Eyjan

Varamenn Samfylkingarinnar þurfa varamenn – Biðjast lausnar vegna álags

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 17. september 2019 16:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þær Ragna Sigurðardóttir og Ellen Jacqueline Calmon, varaborgarfulltrúar Samfylkingarinnar, sem tóku sæti í borgarstjórn þegar þær Guðrún Ögmundsdóttir og Kristín Soffía Jónsdóttir fóru í veikindaleyfi annarsvegar og barnsburðarfrí hinsvegar, hafa báðar beðist lausnar frá störfum sínum tímabundið.

Ragna ber við óhæfilegu álagi vegna náms og Ellen er önnum kafin vegna annarrar vinnu.  Fréttablaðið greinir frá.

Samkvæmt 30. grein sveitarstjórnarlaga gefst borgarfulltrúum færi á að biðjast lausnar:

Telji sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags, svo sem vegna veikinda eða annarrar vinnu, getur sveitarstjórn létt af honum störfum eða veitt honum lausn úr sveitarstjórn, að hans ósk, um tiltekinn fyrir fram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.

Sæti þeirra Rögnu og Ellenar taka þau Aron Leví Beck og Dóra Magnúsdóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Trúverðugleiki Miðflokksins

Orðið á götunni: Trúverðugleiki Miðflokksins
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: „Fake News“, „Fake Stories“, eru eitt stórfelldasta og hættulegasta vandamál okkar tíma

Ole Anton Bieltvedt skrifar: „Fake News“, „Fake Stories“, eru eitt stórfelldasta og hættulegasta vandamál okkar tíma
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Stjórnarskrárbrot Alþingis: Lögmaður sýnir svart á hvítu hversu miklu var breytt í frumvarpinu – „6 orð sem standa eftir“

Stjórnarskrárbrot Alþingis: Lögmaður sýnir svart á hvítu hversu miklu var breytt í frumvarpinu – „6 orð sem standa eftir“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Samfylkingin slaufaði Þórði – hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn við Jón Gunnarsson?

Orðið á götunni: Samfylkingin slaufaði Þórði – hvað gerir Sjálfstæðisflokkurinn við Jón Gunnarsson?