„Það eru spennandi tímar í gangi hér í borginni þar sem fólk og fjölbreyttir fararmátar fá sífellt meira vægi. Frábært dæmi um það er sú göngugötuvæðing sem hafin er og svo það að von bráðar geta borgarbúar ferðast um á rafmagnshjólum og rafmagnshlaupahjólum sem þeir eiga ekki sjálfir heldur taka tímabundið á leigu,“
er haft eftir Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur formanni skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, á vef Reykjavíkurborgar, en mál tengd gangandi vegfarendum og vistvænum fararmátum voru áberandi á fundi skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar í gær.
Nefna má uppbyggingu hjólaskýla við HR og verklagsreglur um starfsemi hjólaleiga í borgarlandi.
Mikil aukning hefur orðið á stöðvarlausum hjólum (hjólum, rafhlaupahjólum) í borgum nágrannalandanna og eru þau orðin þáttur í samgöngukerfi þeirra. Hjólin þykja handhægur ferðamáti sem flestir ráða við og eru sögð nýtast vel sem samgöngubót „síðasta spölinn“ heim og að heiman, á vef Reykjavíkurborgar:
„Tilgangur þessara verklagsreglna er að tryggja gagnsætt og opið verklag þegar þjónustuaðili óskar eftir að starfrækja stöðvalausa hjólaleigu með reiðhjólum, hlaupahjólum eða öðrum sambærilegum léttum farartækjum, án fastra hjólastöðva innan borgarlands Reykjavíkur,“
segir í fréttinni, en tillagan var samþykkt og vísað til borgarráðs.