Þeim fækkar sem hyggja á ferðalög erlendis í sumarfríinu sínu í ár samanborið við fyrri ár en þeim sem áætla ferðalög innanlands fjölgar lítillega. Þetta er kemur fram í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 7. til 14. júní 2019.
Alls kváðust 38% landsmanna eingöngu ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu, 12% kváðust eingöngu ætla að ferðast utanlands, 40% kváðust ætla að ferðast bæði innanlands og utan og 10% sögðust ekki ætla að ferðast neitt í sumar.
Þegar litið er til breytinga yfir tíma má sjá að hlutfall þeirra sem sögðust einungis ætla að ferðast innanlands í ár (38%) reyndist það hæsta frá mælingum ársins 2014 (42%) en heildarhlutfall þeirra sem sögðust ætla að ferðast innanlands (78%) hefur ekki mælst hærra frá í júní 2014 (83%).
Þá fækkar þeim sem hyggja á ferðalög erlendis í (52%) frá mælingum síðasta árs (57%) en hlutfall þeirra hafði hækkað árlega frá mælingum ársins 2013 (35%). Þessi breyting kemur ekki á óvart í ljósi þess að flugkostum til og frá landinu hefur fækkað milli ára og er í takti við könnun MMR frá í apríl síðastliðnum þegar 17% þeirra sem tóku afstöðu svöruðu því til að þeir myndu fara sjaldnar til útlanda í kjölfar brotthvarfs WOW air.
Nokkurn mun var að sjá á svörun eftir stjórnmálaskoðunum. Stuðningsfólk Viðreisnar (46%) og Sjálfstæðisflokksins (40%) reyndist líklegra en stuðningsfólk annarra flokka til að segjast eingöngu ætla að ferðast innanlands í sumar en stuðningsfólk Framsóknar (21%) reyndist líklegast til að segjast eingöngu ætla að ferðast utanlands. Þá reyndist stuðningsfólk Vinstri-grænna (47%) og Pírata (47%) líklegast til að segjast bæði ætla að ferðast innanlands og utan í sumarfríinu en stuðningsfólk Miðflokksins (17%) reyndist líklegast allra til að segjast ekki ætla að ferðast neitt í sumar.
Konur reyndust líklegri til að segjast eingöngu ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu (40%) en karlar (36%). Karlar (13%) reyndust hins vegar líklegri heldur en konur (8%) til að segjast ekki ætla að ferðast í sumar.
Svarendur á aldrinum 30-49 ára (43%) voru líklegri en svarendur annarra aldurshópa til að segjast eingöngu ætla að ferðast innanlands. Hlutfall þeirra sem kváðust eingöngu ætla að ferðast erlendis jókst með auknum aldri (19% þeirra 68 ára og eldri) en hlutfall þeirra sem kváðust ætla að ferðast bæði innanlands og utan var hæst á meðal svarenda á aldrinum 18-29 ára (44%) og fór minnkandi með auknum aldri.
Þá reyndust íbúar landsbyggðarinnar (44%) líklegri en þau af höfuðborgarsvæðinu (34%) til að segjast eingöngu ætla að ferðast innanlands í sumar en svarendur af höfuðborgarsvæðinu reyndust líklegri til að segjast ætla að ferðast bæði innanlands og utan (45%) heldur en svarendur af landsbyggðinni (30%).
Eldri kannanir sama efnis:
Júní 2018: MMR könnun: Fleiri hyggjast ferðast bæði innan og utanlands
Júní 2017: MMR könnun: Aukin ferðalög Íslendinga í sumar
Júlí 2016: MMR könnun: Íslendingar ferðast í auknu mæli utanlands í sumarfríinu
Júlí 2015: MMR könnun: Færri sögðust ætla að ferðast innanlands í sumarfríinu
Júní 2014: MMR könnun: 83% ætla að ferðast innanlands í sumar
Júní 2013: MMR könnun: Rúmur helmingur ætlar eingöngu að ferðast innanlands í sumarfríinu
Júní 2012: MMR könnun: Lítil breyting á ferðahögum Íslendinga í sumarfríinu
Júní 2011: MMR könnun: 38,4% ætla til útlanda í sumar