Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, var í dag ráðin skrifstofustjóri Alþingis. Ragna tekur við embættinu 1. september nk., en þá lætur núverandi skrifstofustjóri, Helgi Bernódusson, af embætti. Ragna er fyrsta konan til að gegna embætti skrifstofustjóra Alþingis, samkvæmt tilkynningu frá Alþingi.
Ragna var valin úr hópi 12 umsækjenda.
Ragna er lögfræðingur að mennt, með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands, auk þess að vera með LL.M. gráðu í Evrópurétti frá Háskólanum í Lundi. Ragna á að baki fjölbreytta starfsreynslu. Hún hefur starfað á skrifstofu Alþingis, skrifstofu Norðurlandaráðs, í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti, dóms- og kirkjumálaráðuneyti og forsætisráðuneyti. Þá hefur hún gegnt embætti dóms- og kirkjumálaráðherra og síðar embætti dómsmála- og mannréttindaráðherra og er nú aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar. Samhliða þessum störfum hefur Ragna gegnt margs konar ábyrgðar- og trúnaðarstörfum.
„Ragna hefur sýnt leiðtogahæfni í störfum sínum og býr yfir margþættri stjórnunarreynslu bæði sem embættismaður og ráðherra auk þess sem hún hefur verið í ábyrgðarmiklum stjórnunarstörfum hjá stóru ríkisfyrirtæki, Landsvirkjun, fyrst sem skrifstofustjóri og síðar sem aðstoðarforstjóri frá 2012. Þá býr Ragna yfir góðri samstarfs- og samskiptahæfni og hefur góða þekkingu á stjórnskipun landsins, hlutverki Alþingis og samspili hinna þriggja greina ríkisvaldsins,“
segir í tilkynningu.
Sérstök þriggja manna hæfnisnefnd fór yfir umsóknirnar og tók viðtöl við þá umsækjendur sem uppfylltu hæfniskröfur auglýsingarinnar. Nefndin skilaði skýrslu til þriggja manna undirnefndar forsætisnefndar og gerði grein fyrir mati sínu á því hvaða umsækjendur nefndin teldi hæfasta til að gegna embætti skrifstofustjóra Alþingis. Undirnefnd forsætisnefndar féllst á niðurstöður hæfnisnefndar og tók viðtöl við þá umsækjendur sem tilgreindir voru í skýrslu nefndarinnar. Að loknum þeim viðtölum lagði undirnefndin til við fullskipaða forsætisnefnd að Ragna Árnadóttir yrði ráðin í embætti skrifstofustjóra. Tillagan var samþykkt í forsætisnefnd Alþingis.